Línuívilnun minnkar úr 400 tonnum af þorski í 300 á milli ára. Landssamband smábátaeigenda (LS) kallar eftir að þeim 200 tonnum sem út af stóðu eftir síðustu strandveiðivertíð verði bætt við línuívilnun.
Þá hafnar sambandið þeirri staðhæfingu sem fram kemur í tilkynningu innviðaráðuneytis um úthlutun byggðakvóta að línuívilnun þjóni ekki lengur upphaflegum markmiðum sínum.
Þvert á móti hafi hún sjaldan verið mikilvægari þar sem hún skapi forsendur fyrir heilsársstörf smábátaeigenda. Óbreytt ástand muni leiða til samþjöppunar veiðiheimilda og skapa aukið álag á strandveiðikerfið.
Óttast frekari samþjöppun
Kjartan Páll Sveinsson formaður sambandsins segir að litlar sjávarbyggðir muni sérstaklega finna fyrir skerðingunni.
„Nú er búið að skera þetta alveg niður að beini og 300 tonn af þorski til línuívilnunar, það mun bara leiða til forsendubrests á útgerðir ansi margra báta,“ segir Kjartan.
Telur Kjartan að óbreytt ástand eigi eftir að leiða til frekari samþjöppunar þar sem stærri útgerðir haldi áfram að kaupa upp heimildir þegar litlar útgerðir leggi upp laupana.
Bátar sem verða verkefnalausir í krókaaflamarkskerfinu séu jafnframt líklegir til að gera í auknum mæli út á strandveiðar, sem aftur auki þrýsting á það kerfi.
Óþarfi að taka af næstminnstu útgerðunum
Aðspurður hvort hann telji að áform ráðherra um uppstokkun á byggðakerfinu eigi að miða að því að fóðra úthlutanir til strandveiða segir Kjartan að það væri skammgóður vermir.
Hann bendir til að mynda á að þau þrjú hundruð tonn sem úthlutað hefur verið til línuívilnunar nái tæpast einum degi á strandveiðivertíðinni.
„Okkur þykir bara í rauninni algjör óþarfi að vera að taka af næstminnstu útgerðunum til þess að láta í þær minnstu. Við viljum bara finna einhverja aðra lausn á því vandamáli,“ segir Kjartan Páll að lokum.