„Með þessari stöðu fylgist ríkisstjórnin nákvæmlega og mun grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er hann var spurður út í viðbrögð stjórnvalda við fyrirhuguðu verkfalli flugvirkja hjá Icelandair.
Lítið sem ekkert hefur þokast í samningaviðræðum og að óbreyttu leggja flugvirkjar niður störf á miðvikudaginn. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins krafði fjármálaráðherra svara um áhrif verkfallsins á ríkisfjármálin og afkomu næsta árs.
Daði Már svaraði því til að verkfallið myndi hafa veruleg áhrif á fjölda atvinnugreina og ferðafrelsi íslensku þjóðarinnar. Sagðist hann enn binda vonir við að það takist að leysa deiluna við samningaborðið en bætti við: „En það er hins vegar alveg rétt að þarna er um þjóðhagslega mikilvæga lífæð Íslands að ræða, ekki bara hvað varðar ferðaþjónustu heldur öll okkar tengsl við umheiminn sem og verulegan hluta af flutningum á t.d. ferskum fiski. Með þessari stöðu fylgist ríkisstjórnin nákvæmlega og grípur til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma,“ sagði Daði Már án þess að tilgreina hvers eðlis slíkar aðgerðir kunni að vera.