Þrír karlmenn á fertugsaldri, sem bera erlend nöfn en eru með íslenska kennitölu, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þeim er gefið að sök að hafa staðið í sameiningu að innflutningi á 963,62 g af ketamíni með 84-86% styrkleika. Söluverðmæti efnanna er á bilinu 15 til 20 milljónir króna.
Reyndu að smygla kílói af ketamíni í póstsendingu