Á Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar þverskurði þjóðarinnar, byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir aftur út í lífið. En nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda, uppbyggingu sem þjóðin getur stuðlað að en fram undan er landssöfnun á vegum Hollvina Reykjalundar. Björg Hákonardóttir sem er sviðsstjóri þjálfunar hjá Reykjalundi og Vignir Freyr Andersen sem sinnir þar viðhaldi fasteigna heimsóttu Morgunútvarp Rásar 2 og sögðu frá starfinu og stóru þjóðarátaki sem snýr að söfnun fyrir bætta aðstöðu á Reykjalundi.
Mikilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfinu
„Miðað er við að allir sem koma þarna inn nái aftur bæði líkamlegri og andlegri færni eftir veikindi eða áföll sem þau hafa orðið fyrir. Þetta er einstaklingsmiðuð þjálfun en þó er unnið mikið í hópum,“ segir Björg Hákonardóttir um starfið á Reykjalundi. Björg segir verkefnin sem snúa að endurhæfingu afar fjölþætt og fjölmargir fagaðilar komi að starfinu. „Þetta skiptist í nokkur svið og fólk hittir fyrir alls konar fagfólk eins og sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga, lækna, sálfræðinga, félagsráðgjafa og næringarfræðinga til að byggja það upp,“ segir Björg.
Vignir Freyr bætir við að magnað sé að fylgjast með skjólstæðingum koma, ná bótum meina sinna og fara sína leið aftur út í lífið. „Þetta er svo mikilvægur hlekkur í því að sjá fólk aftur í virkni. Það kemur hnípið inn en gengur svo hnarreist út eftir nokkrar vikur,“ bætir Vignir við. En það mikilvæga starf sem þarna er unnið fer fram í húsakosti sem er í afar slæmu ástandi og þarfnast úrbóta. „Þetta eru um tuttugu þúsund fermetrar, bara aðeins,“ segir Vignir. Hann bendir á að hús endurhæfingarmiðstöðvarinnar séu orðin um áttatíu ára gömul og hugsi ekki um sig sjálf. „Það þarf að taka til hendinni á mörgum stöðum. Við vorum í sumar að taka sundlaugina í gegn, en það þarf sannarlega að gera meira,“ bætir Vignir við.
Umhverfið þarf að vera styðjandi
Reykjalundur starfar samkvæmt lögum um veitta heilbrigðisþjónustu og í gegnum þjónustusamning við Sjúkratryggingar Íslands, sem greiðir fyrir endurhæfingu hvers skjólstæðings en þar er húsnæðiskostnaður og allt viðhald ekki talið með og stendur þar utan. Húsnæði Reykjalundar er í eigu SÍBS, er rekinn fyrir sjálfsaflafé, m.a. tekjum af happdrætti SÍBS, sem fara þó minnkandi ár frá ári.
„Endurhæfingin snýst ekki bara um sérfræðiþekkingu, umhverfið þarf líka að vera styðjandi og vera heilnæmt fyrir alla,“ bætir Björg við en mikið er um myglu í húsunum þar sem starfsfólk annast meðal annars hjarta- og lungnasjúklinga. Það ástand hlýtur að teljast bagalegt. Húsakostur og nær öll aðstaða þarfnast nú brýnna úrbóta og bendir nú starfsfólk Reykjalundar á að afar aðkallandi sé að bregðast við svo mögulegt sé að halda því mikilvæga starfi áfram sem þar er unnið.
Endurhæfum Reykjalund
Fram undan er mikilvæg söfnun á landsvísu sem snýr að Reykjalundi og því magnaða starfi sem þar er unnið. Yfirskriftin er Endurhæfum Reykjalund og verður bein útsending á RÚV föstudaginn 2. október og í símaveri Sýnar þar sem safna á fyrir brýnni uppbyggingu húsakosts Reykjalundar. Meðal annars verður safnað fyrir endurbyggingu á sjúkraþjálfunarálmu. Fjöldi landsþekkts listafólks leggur málefninu lið og kemur fram í útsendingunni en þau Sigurlaug Jónasdóttir, Guðrún Dís Emilsdóttir, Fannar Sveinsson og Siggi Gunnars munu stýra dagskránni þetta kvöld.