Friedrich Merz Þýskalandskanslari ljáir ekki máls á því að hann hætti sem kanslari eða sem leiðtogi Kristilegra demókrata, þótt flokkur hans hafi beðið sögulegt afhroð í kosningunum í Mecklenburg-Vorpommern í gær. Kristilegir demókratar fengu þar innan við fimm prósent atkvæða og falla þar með útaf þingi sambandsríkisins - sem hefur aldrei gerst í sögu flokksins frá því um miðja síðustu öld.
Merz ræddi við fjölmiðla í Berlín í morgun, að afstöðnum fundi flokksforystunnar, þar sem farið var yfir úrslitin.
„Enginn ræddi um mannaskipti, hvorki í gærkvöldi né í morgun - enginn,“ sagði Merz, þegar hann var spurður hvort hann hefði nægilegan stuðning innan Kristilegra demókrata, til að halda áfram sem kanslari.
Merz viðurkenndi að óvinsældir hans sem kanslara hefðu örugglega haft áhrif á niðurstöðurnar í Mecklenburg-Vorpommern og í Berlín. „[En] úrslitin og ástæðan fyrir þeim snúast ekki bara um mig,“ sagði Merz, „við erum að upplifa djúpstæðar breytingar á stjórnmálunum, ekki aðeins í Þýskalandi, heldur í fjölmörgum öðrum ríkjum,“ sagði hann.
Snýst um framtíð lýðræðisins í Þýskalandi
Merz sagðist vera þakklátur fyrir þau skilaboð sem borist hafa frá Jafnaðarmönnum (SPD) um að sá flokkur ætli að halda áfram samstarfinu við Kristilega demókrata í ríkistjórn Þýskalands. „Sameiginlega, þá erum við staðráðin í að takast á við þær sögulegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir; þetta snýst um hvorki meira né minna en framtíð lýðræðisins í Þýskalandi,“ sagði Merz.