Nenni níski er ein af skemmtilegu persónunum í Latabæ en hann reynir að helga sér allt sem í kringum hann er. Hjá honum snýst lífið um að eiga allt og meina öðrum aðgengi. Framganga hans kemur í hugann þegar lesið er um niðurstöður þings ungra sjálfstæðismanna sem haldið var á Eskifirði um liðna helgi að því virðist undir kjörorðinu FULLA FERÐ. En þegar ályktun þingsins er skoðuð má velt því fyrir sér hvort ungliðar flokksins hafi ekki frekar verið FULLIR Á FERÐ.
Orðið á götunni: „Ég á þetta strætóskýli!” – Ungir sjálfstæðismenn krefjast valda fyrir flokkinn