Gular viðvaranir voru í gildi fram eftir morgni en töluvert meiri vindur mældist utan byggðar en innan á suðvesturhorninu. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur bendir á að trén á höfuðborgarsvæðinu hafi veitt gott skjól fyrir vindi.
„Það er bara þannig að það eru ennþá lauf á öllum lauftrjám og þegar blæs nokkuð hressilega eins og í morgun þá taka þau vel í og veita mikið skjól. Maður sér þetta af því að það eru svo margir vindmælar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Einar.
Vindstyrkur í byggð hafi verið á bilinu 7 til 11 metrar á sekúndu á meðan hann hafi mælst á bilinu 14 til 20 utan byggðar. „Þar sem að trén og byggðin sjálf er ekki að skýla.“
Einar segir það þó ekki svo einfalt að hægt sé að fullyrða að hvassara yrði innan borgarmarkanna í sambærilegu veðri síðar í haust þegar laufin verða fallin.
„Kannski ekki endilega, því þó svo að laufin geri mikið gagn þá standa ennþá öll barrtré. En ef sambærilegt hefði komið fyrir 50 árum eða 30 árum þá hefðum við fundið meira fyrir vindinum en við gerum í dag.“