Uppákoma varð á Kaffistofu Samhjálpar við Hátún í Reykjavík í dag. Eins og sést í myndbandi sem deilt var á samfélagsmiðlum var stuðningsmanni Ísraels vikið út með illu.Í um hálfrar mínútu myndbandi sem deilt var á samfélagsmiðla mátti sá uppákomu í Kaffistofu Samhjálpar, undir rampi Fíladelfíukirkjunnar við Hátún í Reykjavík. Miðað við myndefnið má ætla að uppákoman snúist að einhverju leyti um málefni Ísrael og Palestínu.Starfsfólk Samhjálpar vildi ekkert tjá sig um málið. En ljóst er að fullorðnum karlmanni var vikið af kaffistofunni í dag.
Uppákoma á Kaffistofu Samhjálpar – Öskrað „God bless Israel“ og „Free Palestine“