Þetta staðfesta heimildir fréttastofu en Kristín og Þorvar eiga saman soninn Tind og fyrir á Kristín soninn Storm.
Kristín er fædd árið 1992 og er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins. Hún er útskrifuð leikkona en hún hefur vakið athygli bæði á sviði og í kvikmyndum og þáttum. Hún er með rúmlega tuttugu þúsund fylgjendur á Instagram og hefur í gegnum tíðina ratað á lista yfir eftirsóttustu skvísur landsins. Þorvar er fæddur árið 1997 og hefur starfað sem handboltadómari í árabil.