Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi sem skipaði baráttusæti á lista Vinstrisins í Reykjavík, grunar að úrslit nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga ýti undir að styttast muni í næstu Alþingiskosningar.
Rekur hann það til þeirra afhroða sem Samfylking og aðrir flokkar vinstra megin við miðju guldu.
„Jæja, svona fór um sjóferð þá. Við höfum í kvöld og nótt horft upp á mikla hægrisveiflu á landsvísu,“ skrifar hann í færslu á Facebook sem birtist skömmu eftir að lokatölur á landsvísu voru kunngjörðar.
Geti huggað sig við gengi miðað við landssveiflu
Stefán segir ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn sé yfirburðasigurvegari kosninganna á meðan Framsókn og Miðflokkur megi vel við una.
Hann segir sig og vini sína í Vinstrinu í Reykjavík hafa viljað gera betur en að þau geti huggað sig við að miðað við landssveifluna hafi róttæka vinstrið staðið sig vel.
„Sameiginlegt fylgi Vinstrisins og Sósíalistaflokksins er öllu meira en hjá VG og Sósíalistaflokki síðast – en Samfylking og aðrir flokkar vinstra megin við miðju ýmist lækkuðu eða guldu afhroð. Þá er að sleikja sárin og byggja sig upp hratt og örugglega. Mig grunar að úrslitin nú ýti undir að styttist í næstu Alþingiskosningar.“