Í dag og næstu daga verður áfram hæglætisveður á landinu: hlýtt, rakt og skýjað, en sólarglennur gætu brotið sér leið gegnum skýjahuluna af og til, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Næstu daga verður vindur lengst af hægur. Allnokkrar smálægðir hringsóla í nágrenni við okkur og vindátt breytileg. Hins vegar verður skýjað um mestallt land þótt einhverjar sólarglennur brjótist í gegnum skýjahuluna af og til.
Einnig er fremur hátt rakastig svo einhverrar vætu er að vænta líka. Hitastigið verður í
góðu meðallagi og gæti hámarkshitinn þar sem best lætur komist svolítið yfir 15 stig.