Snæfríður og Högni hafa eytt miklum tíma í Los Angeles að undanförnu við fjölbreytt verkefni. Högni samdi meðal annars tónlist fyrir Netflix kvikmyndina Apex sem Baltasar Kormákur leikstýrði.
Hjúin skrifa á Facebook undir söluna:
„Við höfum átt yndislegan tíma og hreiðrað vel um okkur á þessum skemmtilega reit, en nú er kominn tími á ný ævintýri.“
Íbúðin er á efri hæð við Hafnartorgið og er einstaklega björt með óskert útsýni til suðurs.