Lovísa Guðrún Ólafsdóttir er skólastjóri í Hólabrekkuskóla í Breiðholti sem telur rúmlega fimm hundruð nemendur og nær til allra bekkja grunnskóla. Líkt og fleiri skólar á öllum stigum víða um land hafa verið vandræði með húsakost undanfarin ár. Um tíma þurfti unglingadeild skólans að flytja sig um set í Korpuhverfi í Grafarvogi en nú horfir til betri vegar.
Lovísa segir öryggisúttekt fyrir helgi hafa leitt í ljós að eitt og annað þyrfti að fínpússa. Allir hafi verið sveittir að laga það um helgina en ekki tekist að ljúka því fyrir fyrsta skóladag í dag.
„Við vorum svo glöð í morgun. Við héldum fína skólasetningu og fórum yfir áherslur í skólastarfinu en svo var það bara gleðin við að fá nýtt húsnæði,“ segir Lovísa Guðrún.
Skólahald hófst samkvæmt stundarskrá hjá yngri bekkjum að lokinni skólasetningu. Hjá unglingunum, sem eru um 160, var farið í skoðunarferð um nýja skólann áður en nemendur fóru heim, fyrr en foreldrar þeirra og þeir sjálfir höfðu reiknað með.
„Ég get ekki sagt að nemendur hafi verið mjög svekktir með að hafa fengið að fara fyrr heim,“ segir Lovísa Guðrún á léttum nótum.
„En við náðum allavega öllum úr rúminu og það hjálpar til við að koma öllum í rútínu.“
Hún nefnir að margir skólar séu einmitt með fyrsta skóladag skertan.
„Þetta var ekkert alslæmt þótt maður hefði auðvitað viljað að þetta byrjaði samkvæmt stundaskrá.“
Það skyggir ekkert á gleðina enda hefur biðin eftir nýju húsnæði verið löng og ströng. Nú séu tímamót og tilefni til að gleðjast fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Breiðholtinu.
„Þetta hlýtur að vera byrjunin á einhverju stórkostlegu í unglingadeildinni.“