Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Umhverfis- og orkustofnun hafa gert ákveðnar athugasemdir við áform um að reisa nýtt hænsnabú á Tindstöðum á Kjalarnesi. Segja báðar stofnanir í umsögnum sínum að í gögnum frá framkvæmdaaðila skorti á að nægilega vel sé gert grein fyrir hvað gera eigi við hænsnaskítinn frá búinu en reiknað er með að um 520-560 tonn af skít komi frá búinu á hverju ári, þegar það verði fullbyggt.
Skýra þurfi betur hvað eigi að gera við nokkur hundruð tonn af hænsnaskít á Kjalarnesi