Seinkun klukkunnar á Íslandi um eina klukkustund myndi koma öllu landinu til góðs. Fólk myndi vakna oftar í birtu en morgunbirtan er einmitt mikilvægasti þátturinn í stillingu líkamsklukkunnar samkvæmt framkvæmdastjóra Betri svefns.
Greint var frá því í gær að fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefði samþykkt að gera sumartíma varanlegan með 308 atkvæðum gegn 117. Þannig verði hætt að færa klukkuna um klukkustund tvisvar á ári og notast við þann tíma sem hingað til hefur verið notaður frá mars fram til nóvember.
Þannig eru Bandaríkjamenn að feta í fótspor Íslendinga en árið 1968 var klukkuhringl afnumið hér á landi. Þá var ákveðið að halda klukkunni í UTC-0 en mikil umræða hefur verið síðustu ár um að ákjósanlegra hefði verið að halda í UTC-1. Það myndi þýða seinkun íslensku klukkunnar um eina klukkustund.
Skynsamlegir Bandaríkjamenn
Dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri svefns, telur það mjög skynsamlegt af Bandaríkjamönnum að hætta klukkuhringlinu.
„Rannsóknir sýna mjög skýrt, sérstaklega þegar klukkan er færð fram á vorin, að þá sést tímabundin aukning í umferðarslysum, hjartaáföllum, veikindum og fleiru sem tengja má við styttri svefn og breytingar á líkamsklukku,“ segir Erla í samtali við mbl.is
Það sé ekki hollt fyrir okkur mannfólkið að flakka með tímann og þess vegna sé þetta góð ákvörðun hjá Bandaríkjaþingi.
Erla segir það ljóst að þrátt fyrir að einstaklingurinn finni ekki endilega áhrif klukkuhringls séu áhrifin augljós þegar horft er til samfélagsins sem heildar.
„Þá kemur bara augljóslega í ljós að fólk er að sofa styttra og það hefur þessi áhrif sem sjá má í rannsóknum.“
Ekki réttur tími miðað við gang sólar
Erla segist fylgjandi því að leiðrétta klukkuna hér á landi, tíminn sem Íslendingar hafi fest sig við árið 1968 sé „í raun og veru ekki réttur tími miðað við gang sólar“.
Erla viðurkennir að breyting klukkunnar hér á landi um 1 klukkutíma yrði þó engin töfralausn.
„Við myndum áfram vera með öfga í birtu en við myndum hins vegar stytta þessa dimmu morgna mjög mikið. Við myndum stytta það að vakna í myrkri í um það bil sex vikur þannig að skammdegið yrði styttra og við næðum því að vera á réttum tíma.“
Hún bendir einnig á að þrátt fyrir stærð Íslands sé munur á því hvenær sólin rís eftir landshlutum. Þá er mesti munurinn á suðvesturhorninu og fyrir austan.
„Að gera eina breytingu um klukkutíma myndi þjóna öllu landinu mjög vel og þá værum við að vakna oftar í birtu en það er morgunbirtan sem er mikilvægasta merki líkamsklukkunnar til að stilla sig eftir,“ segir Erla.