Ákvörðunin hefur vakið miklar áhyggjur á Norður-Írlandi enda var deilan um árlega Drumcree-gönguna eitt eldfimasta deilumál síðustu ára átakanna þar. Hverfið umhverfis Garvaghy Road er að mestu byggt írskum þjóðernissinnum og kaþólikkum en Óraníureglan eru mótmælendasamtök nátengd vopnuðum sveitum sambandssinna á síðustu öld.
Gangan á að hefjast við Drumcree-kirkju klukkan átta í fyrramálið, sunnudagsmorgun, samkvæmt umfjöllun Guardian. Aðeins 35 manns mega taka þátt, engar lúðrasveitir verða með í för og stuðningsmönnum er ekki heimilt að fylgja göngunni.
Erfitt að ofmeta vantraustið
Í kjölfar ákvörðunar svokallaðrar skrúðgöngunefndar Norður-Írlands um að heimila gönguna leituðu samtök íbúa við Garvaghy Road til dómstóla. Eftir fimm klukkustunda málflutning ákvað dómari við Hæstarétt Norður-Írlands að stöðva gönguna tímabundið.
Dómarinn, Justice Smyth, reyndi áður að fá Óraníuregluna og íbúasamtökin til að komast að samkomulagi um að fresta göngunni. Hún sagði vantraustið milli hópanna svo mikið að erfitt væri að ofmeta það og hvatti aðila til að „stíga frá brúninni“ friðarins vegna á Norður-Írlandi.
Óraníureglan féllst ekki á að fresta göngunni og málinu var áfrýjað. Skömmu fyrir miðnætti var tímabundna bannið fellt úr gildi og stendur ákvörðun skrúðgöngunefndarinnar því óhögguð.
Barnungir bræður drepnir í óeirðunum
Málið á rætur að rekja langt aftur í tímann en í fersku minni eru deilurnar um Garvaghy Road-gönguna á seinni hluta tíunda áratugarins, þegar friðarumleitanir á Norður-Írlandi stóðu sem hæst. Óraníureglan hafði um langt skeið gengið árlega frá Drumcree-kirkju og niður Garvaghy Road. Gangan á sér langa sögu allt frá nítjándu öld en íbúasamsetning hverfisins hefur síðan breyst og hefur hverfið í kringum Garvaghy Road orðið kaþólskt og sameiningarsinnað að mestu.
Árin 1995 til 1998 einkenndust af gríðarlegum öryggisviðbúnaði í kringum göngurnar, götubardögum, vegatálmum og óeirðum. Á seinni hluta tíunda áratugarins árum voru þúsundir lögreglumanna og hermanna kallaðir út til að halda fylkingunum aðskildum.
Aðeins nokkrum mánuðum eftir undirritun samkomulagsins sem kennt er við föstudaginn langa og lögðu grunn að friði á Norður-Írlandi komst Garvaghy Road aftur í hámæli.
Óraníureglunni var þá meinað að ganga um Garvaghy Road og mótmæltu sambandssinnar því víða um landið. Á meðan mótmælunum stóð var bensínsprengju kastað inn í heimili hinnar kaþólsku Quinn-fjölskyldu í Ballymoney. Þrír ungir bræður, hinn ellefu ára Richard, tíu ára Mark og níu ára Jason, létust í eldinum.