Í dag fundust skordýr í hádegisverði frá Skólamat ehf. í sex skólum – þar af fjórum leikskólum Reykjavíkurborgar. Skordýrin fundust í hrísgrjónum frá Garra sem notuð voru í matargerð.
Í yfirlýsingu frá Skólamat segir að ekkert sem hafi komið fram bendi til þess að rekja megi frávikið til framreiðslu, matseldar, framleiðslu eða hreinlætis hjá Skólamat.
„Um leið og umfang málsins varð ljóst voru viðbragðsferlar virkjaðir. Viðkomandi hráefni var tekið úr notkun, því fargað og rekjanleiki staðfestur. [...] Málið hefur jafnframt verið tekið upp við birgja,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að heilsufarsleg hætta hafi ekki stafað af atvikinu.
Leikskólarnir sem um ræðir eru Hraunborg, Borg, Ævintýraborg á Eggertsgötu og Blásalir. Samkvæmt frétt mbl.is voru skordýrin bjöllur sem fundust í kjötsúpu sem var borin fram í hádeginu.
Ný hráefni í kjötsúpunni á Ljósanótt
Heilbrigðiseftirlitið var upplýst um málið og kom á starfsstöð Skólamatar til að fara yfir aðstæður og verklag.
„Engar athugasemdir voru gerðar á vettvangi að lokinni þeirri skoðun,“ segir í yfirlýsingu fyrirtækisins.
Þá segir að Skólamatur harmi atvikið mjög og líti það alvarlegum augum.
Skólamatur býður upp á kjötsúpu á Ljósanótt í kvöld, líkt og undanfarin ár.
„Súpan í kvöld verður gerð úr nýju og fersku hráefni frá öðrum birgja,“ segir í yfirlýsingunni.