Gleðin var við völd þegar fyrsta skóflustungan að nýjum náms- og stúdentagörðum var tekin á Akureyri í dag. Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri, Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri, Aðalbjörn Jóhannsson formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA) og Böðvar Ingi Guðjónsson nýnemi í sálfræðideild HA tóku skóflustunguna.
Þrjú fjögurra til fimm hæða fjölbýlishús rísa við háskólann með 126 íbúðum og einstaklingsherbergjum fyrir allt að 170 íbúa.
„Það hefur verið mikil þörf fyrir á síðustu árum. Þetta eru þrjár byggingar við Norðurslóð. Heildarstærðin er um 6700 fermetrar. Þetta eru 62 litlar íbúðir, sem sagt stúdíó- og tveggja herbergja íbúðir, og 64 einstaklingsherbergi,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmastjóri Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri.
Loksins tækifæri til að byggja upp lifandi stúdentasamfélag
Áslaug var hæstánægð með dagsverkið þegar að fréttastofa náði tali af henni síðdegis.
„Þetta eru mjög spennandi tímar. Það er langt síðan voru byggðar nýjar stúdentaíbúðir á Akureyri.“
Þetta er mikil framkvæmd en vonir standa til að fyrstu íbúarnir geti flutt inn eftir tvö ár.
„Núna eru íbúðir nemenda komnar mikið nær skólanum. Þetta gerir okkur kleift að halda áfram að byggja upp lifandi stúdentasamfélag,“ segir Áslaug.
Þingvellir, Sólvellir og Akurvellir
Félagsstofnun Stúdenta á Akureyri, FÉSTA, samdi við verktakafyrirtækið K16 ehf. um byggingu stúdentagarðana. Áætlaður kostnaður eru um 4,5 milljarðar króna.
Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir:
„FÉSTA samdi við K16 ehf. um byggingu stúdentagarðanna að undangenginni hugmyndasamkeppni um hönnun þeirra. Ellefu tillögur bárust. Tillaga Nordic Office of Architecture fékk fyrstu verðlaun.
Byggingarnar fá nöfnin Sólvellir, Þingvellir og Akurvellir. Með framkvæmdinni verður stigið stórt skref til að mæta eftirspurn eftir hentugu og hagkvæmu húsnæði fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri.