Íslensk stjórnvöld hafa til skoðunar beiðni úkraínskra stjórnvalda um að skilyrða veitingu dvalarleyfis til úkraínskra umsækjenda um alþjóðlega vernd við að þeir hafi uppfyllt herskyldu.
Evrópusambandsríki samþykktu slík skilyrði í morgun, en Úkraínuher hefur lengi átt í erfiðleikum með að manna hersveitir gegn innrásarliði Rússa.
Þar er í gildi herskylda fyrir alla karlmenn á aldrinum 25 til 60 ára. Karlmenn á aldrinum 23 til 25 ára, sem eru á útkallslista fyrir varalið, mega ekki yfirgefa Úkraínu án leyfis.
Ísland hefur ekki enn gengið frá framlengingu dvalarleyfis úkraínskra flóttamanna. Frumvarp þar að lútandi dagaði uppi á Alþingi í vor.
Reglugerðarbreyting gæti dugað til
Þorbjörg Sigrður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra átti ekki kost á að veita fréttastofu viðtal, en í svari dómsmálaráðuneytisins segir að svipað skilyrði sé til skoðunar hér, að beiðni stjórnvalda í Úkraínu.
Ísland hafi jafnan miðað sína löggjöf við það sem gildir annars staðar á Norðurlöndunum.
Skilyrðið er enn óútfært, en er í raun ótengt frumvarpinu þar sem hægt er að koma því á með breytingu á reglugerð, jafnvel áður en frumvarpið verður afgreitt á þingi.
Næstum sjö þúsund Úkraínumenn hafa fengið tímabundið dvalarleyfi hér á landi frá upphafi innrásar Rússa í heimaland þeirra árið 2022.
Þrír af hverjum fjórum sem sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi á fyrstu sex mánuðum ársins eru frá Úkraínu.