Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 varð í Hengli klukkan 13:45. Hann fannst meðal annars vel í Hveragerði og á Selfossi, á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi.
Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir upptökin hafa verið vestur af Húsmúla í vesturhluta Hengilsins. Jarðskjálftahrina hófst snemma í gærmorgun og skjálftarnir orðnir um 600 talsins. Þetta er stærsti skjálftinn sem orðið hefur í hrinunni.
Eftirskjálftar hafa orðið og búast má við þeim áfram í dag og á morgun, og jafnvel næstu daga.
Elísabet segir að skjálftar af þessari stærð í Hengli ekki svo óvenjulega, en að áfram verði fylgst vel með.
Fréttin verður uppfærð.