Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborginni í gær eða nótt eftir að höfð voru afskipti af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti og var málið afgreitt með aðstoð barnaverndar.
Einstaklingur var handtekinn í miðborginni vegna líkamsárásar, vopnalagabrots og vörslu fíkniefna og var hann síðan vistaður í fangaklefa. Annar einstaklingur var handtekinn í Hafnarfirði vegna líkamsárásar og var sá einnig vistaður í fangaklefa.
Lögregla hafði einnig afskipti af einstaklingi í Kópavogi og þá kom í ljós að maðurinn var í ólöglegri dvöl hér á landi. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í Kópavogi vegna ungmennis sem var ofurölvi og var málið afgreitt með aðkomu foreldris.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í miðborginni vegna einstaklings sem datt á rafhlaupahjóli. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið til aðhlynningar en ekki kemur fram hversu alvarleg meiðsl hans voru.