Alls voru 92 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í morgun. Sem fyrr sagði var einn handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 101 í Reykjavík, auk vopnalagabrots og vörslu fíkniefna.
Í Breiðholti réðst hópur ungmenna á einn og var málið útkljáð með aðstoð Barnaverndar. Í Kópavogi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ungmennis sem reyndist ofurölvi. Málið var afgreitt með aðkomu foreldris.
Datt af Hopp-hjóli og fluttur á slysadeild
Lögregla hafði þá afskipti af manni sem reyndist dvelja ólöglega hér á landi. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í miðborginni þegar einn datt af rafmagnshlaupahjóli í miðborginni. Sá var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl til aðhlynningar.
Í sama hverfi hafði lögregla afskipti af manni í annarlegu ástandi sökum ölvunar. Eftir árangurslausa tilraun lögreglu til að koma honum heim hafi hann verið vistaður í fangaklefa.
Veistu meira um málið? Veistu hvaða skemmtistað var lokað? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með nafnlausu fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Veistu hvaða skemmtistað var lokað? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með nafnlausu fréttaskoti hér. Fullum trúnaði er heitið.