Bandaríski handritshöfundurinn Dan Greaney hefur boðað forsetaframboð árið 2028, í kynningarmyndbandi á Instagram. Hann er einna þekktastur fyrir að skrifa fyrir Simpson-fjölskylduna og ekki síst þáttinn frá árinu 2000 þar sem Donalds Trump er getið sem fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fimmtán árum áður en hann gaf loks kost á sér.
Þá skyggndist Bart Simpson inn í framtíðina árið 2030 þar sem Lisa systir hans var orðin forseti og talaði um gríðarlegan fjárlagahalla eftir valdatíð Trump. Bandaríkin reyndust gjaldþrota. Trump hafði reyndar viðrað hugmyndir um að bjóða sig fram árið 2000.
Greaney sagði síðar í viðtölum að hugmyndin hefði á sínum tíma átt að vera brandari um „hvað bandarískt samfélag væri að verða furðulegt“ og hefði átt að vera einhvers konar viðvörun til almennings.
Greaney segist í kynningarmyndbandinu bjóða sig fram sem „framsækinn Repúblikani“ í anda Abrahams Lincoln og atyrti Trump, JD Vance varaforseta og aðra forystumenn sem hann sagði hafa snúið baki við hugsjónum flokksins.
Hann boðaði meðal annars almennt heilbrigðiskerfi fyrir alla og sagði hlutverk stjórnmálanna að sinna almenningi, ekki aðeins auðkýfingum.
Greaney hefur lögfræðimenntun frá Harvard, hefur starfað sem blaðamaður og skrifað handrit fyrir Simpsons allt frá árinu 1995. Einnig hefur Greany komið að gerð gamanþáttanna „The Office“ þar sem Steve Carrell fetaði í fótspor Ricky Gervais sem vandræðalegur yfirmaður á skrifstofu umvafinn furðufuglum.