Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja nei-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu
Rannsóknarfjölmiðillinn Follow the Money fullyrðir að íslenskir styrktaraðilar nei-herferða fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi einnig styrkt Brexit-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu.
Ný rannsóknin sem er á vegum hollenska rannsóknarfjölmiðilsins Follow the Money sýnir að styrktaraðilar nei-herferða fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið, hafi einnig styrkt Brexit-hreyfinguna á sínum tíma. Höfundar rannsóknarinnar notuðu upplýsingar frá fyrirtækjaskrá Skattsins við greiningu sína.
Í grein Follow the Money kemur fram að herferð nei-sinna svipi til herferðar Brexit-hreyfingarinnar. Í báðum tilfellum hafi sjávarútvegurinn reynst eldfimt umræðuefni í viðræðum, þar með talið skipting fiskikvótans. Höfundar rannsóknarinnar segja líkindin ekki einungis tilkomin vegna svipaðra herferða heldur hafi Íslendingar verið virkir í Brexit-hreyfingunni sem og í baráttu nei-sinna hér heima. Þannig hafi íslensk fyrirtæki sem eru tortryggin á Evrópu (e. eurosceptic) nýtt sér hugmyndafræði Brexit-hreyfingarinnar hér heima í núverandi kosningabaráttu.
Fyrirtækin sem studdu hreyfinguna á sínum tíma eru íslensk sjávarútvegsfyrirtæki á borð við Brim og Ísfélagið. Þau styrktu Bandalag íhaldsmanna og umbótasinna í Evrópu (ACRE, nú ECR) og hugveitu þess, New Direction, um 17.000 evrur eða um 2,4 …