Samtökin SJÁ, sem hvetja landsmenn til að greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju, hafa fjarlægt myndband um verð á mjólk eftir að rangar upplýsingar í því vöktu mikla athygli.
Myndbandið var birt á samfélagsmiðlum samtakanna að morgni miðvikudagsins 15. júlí. Þar var verð á mjólk á Íslandi borið saman við verð í Svíþjóð.
Í samanburðinum var því haldið fram að einn lítri af mjólk kostaði 380 krónur á Íslandi.
Samtökin sögðu mjólkurlítrann kosta 380 krónur á Íslandi. Verðið er hins vegar 234 til 235 krónur í Bónus og Krónunni.
Sú tala er hins vegar langt frá því verði sem íslenskir neytendur greiða almennt í matvöruverslunum.
Mjólkin kostar 234 krónur í Bónus
Einn lítri af MS-léttmjólk kostar 234 krónur í Bónus og 235 krónur í Krónunni. Verðið sem birtist í myndbandi SJÁ var því 145 krónum hærra en verðið í Krónunni, eða tæplega 62 prósentum of hátt. ablaðið vakti athygli á málinu í umfjöllun undir fyrirsögninni „Já til að SJÁ fellur á mjólkurfernuprófinu“. Umfjöllunin dreifðist hratt á samfélagsmiðlum og fjölmargir netverjar bentu á hið raunverulega verð mjólkurinnar.
Skömmu síðar var myndbandið fjarlægt af samfélagsmiðlum SJÁ-hreyfingarinnar.
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst 2026. Þar verður spurt hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki verður kosið um sjálfa aðild Íslands að sambandinu að þessu sinni.
Já-sinnar segja í nýjasta myndbandi sínu að mjólkurfernan kosti 380 kr. á Íslandi meðan staðreyndin er að hún kostar 235 krónur. Þau þurftu að segja ósatt svo boðskapurinn meiki sens.
Heldur þetta fólk að samborgarar þeirra sjái ekki óheiðarleikann? pic.twitter.com/mbqmD009vw
— Arnar Arinbjarnarson (@arnarar) July 15, 2026