Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar Alþingis, sakar Ísfélag Vestmannaeyja um „vigtarsvindl“ og segir óhætt að bæta verulega í veiðar. Líkt og Eyjan greindi frá í gær ákvað Fiskistofa að afturkalla vigtunarleyfi fyrirtækisins á Þórshöfn í hálft ár frá og með 1. júní þar sem ekki hafi verið gengið úr skugga um að vigt sem var notuð til endurvigtunar á þorski í janúar í fyrra uppfylli skilyrði löggildingar.
Sjá frétt: Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár
Ákvörðun Fiskistofu er áhugaverð fyrir margra hluta sakir þar sem talað er um að „átt hafi verið við“ vigtina þar sem hún sýndi minni þunga en aðrar vigtir, lokaniðurstaðan var að ekki sé hægt að fullyrða um að stillingum hafi verið breytt af ásetningi. Ísfélagið hafnar því alfarið í bréfi lögmanns til Fiskistofu að einhver á þeirra vegum hafi átt við vigtina, það hafi enga hagsmuni af slíku og starfsmaður sem yrði uppvís að slíku sæti brottrekstri.
Í ákvörðun Fiskistofu segir að ekki séu forsendur fyrir því að leiðrétta aflaskráningu.
„Það liggur hins vegar fyrir að sjómennirnir sem lönduðu á vigtinni góðu hafa ekki fengið greitt að fullu fyrir sína vinnu og því vonast ég til þess að sjómannafélögin sjái til þess að gert verði upp við þá í samræmi við rétta vigt,“ segir Sigurjón í færslu á Facebook.
„Það sem er verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins er að á sama tíma og átt var við vigtina þá gengu þeir afar hart fram gegn því að opnað væri á eitthvert svigrúm gagnvart standveiðisjómönnum.“
Vísar Sigurjón í kæru Ísfélagsins til umboðsmanns Alþingis á umframúthlutunum til strandveiða, taldi Ísfélagið það brjóta gegn lögum um stjórn fiskveiða, vísað er til kærunnar í umsögn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi til atvinnuveganefndar nú í apríl.
„Þessi kærumál urðu til þess að farið var að varfærni í að veita skynsamlegt svigrúm til strandveiða þar til málin væru til lykta leidd,“ segir Sigurjón.
„Skýringar Ísfélagsins á sínum málatilbúnað voru með ýmsu móti m.a. vildu heiðursmennirnir í Ísfélaginu koma í veg fyrir óábyrgar veiðar. Þeir orðuðu það svo skemmtilega eitthvað á þá leið; að með óábyrgum strandveiðum væri verið að vega að samfélaginu öllu með því að fara á svig við ábyrg nýtingarsjónarmið og þar með ábyrgum fiskveiðum.“
Sigurjón vill að útgerðin læri af þessu:
„Vonandi er að stórútgerðin læri af þessu máli en þegar öllu er á botninn hvolft þá tel ég að hagsmunum stórútgerðarinnar sé betur borgið með því að efla nýliðu og smábátaúgerð í stað þess að nota hvert tækifæri til þess að stíga á þá minni í greininni.“