Maðurinn sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði í gær hét Sigurður Fannar Þórsson. Greint var frá andlátinu í fréttum í gær. Talið er að hann hafi svipt sig lífi.
Sigurður afplánaði 16 ára fangelsisdóm fyrir að bana dóttur sinni.
Sævar Þór Jónsson, lögmaður mannsins, sendi fréttastofu yfirlýsingu vegna málsins. Hér er hún í heild:
„Þetta átakanlega mál lýtur að viðkvæmum persónuhögum, en það vekur jafnframt alvarlegar og kerfislægar spurningar um aðbúnað og öryggi fanga. Það er engin betrun fólgin í því að læsa einstaklinga inni í klefum sínum klukkutímum saman án fullnægjandi eftirlits, sérstaklega þegar í hlut eiga berskjaldaðir einstaklingar í brothættu andlegu ástandi. Það er knýjandi nauðsyn að knýja á um svör og rannsaka hvort eftirliti innan fangelsiskerfisins sé ábótavant og hvernig geðheilbrigðismat og áhættumat fanga fer fram innanhúss.“
Fréttin var uppfærð með yfirlýsingu frá lögmanni mannsins.