Siggi Gunnars var ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2 árið 2022 eftir að hafa starfað áður sem dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvarinnar K100. Siggi er menntaður fjölmiðlafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og er með meistaragráðu í faginu með áherslu á útvarp frá háskólanum í Sunderland á Englandi.
Sjá einnig: Siggi Gunnars nýr tónlistarstjóri Rásar 2
Siggi hefur stýrt hinum ýmsu þáttum á Rás 2 síðustu fjögur ár, meðal annars Popplandi, Upp, upp mín sál og Uppskrift að jólum. Hann færði sig yfir í sjónvarpið í apríl á þessu ári þegar hann byrjaði með menningarþættina Miðstöðina.
Siggi staðfesti í samtali við blaðamann að hann hefði hætt sem tónlistarstjóri Rásar 2 fyrr á árinu og væri kominn alfarið í dagskrárgerð. Hann hefði langað til að sinna meiri dagskrárgerð og minni stjórnun.
Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri Rásar 2, segist við blaðamann hafa séð um verkefni tónlistarstjóra síðan Siggi færði sig yfir í sjónvarpið í samvinnu við tónlistarráð stöðvarinnar.
„Ég tók að mér tónlistarstjórnina aftur eftir að Siggi fór, ég var tónlistarstjóri Rásar 2 áður en ég varð dagskrárstjóri, og í rauninni mun tónlistarráð Rásar 2 stýra þessu. Sama tónlistarráð og hefur verið,“ segir Mattías en ráðið er skipað starfsfólki stöðvarinnar.
„Ég svara fyrir tónlistarráðið og sinni þessum helstu tónlistarstjóraverkefnum sem Siggi var með,“ segir hann.