Sex Íslendingar voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Þeir sæta gæsluvarðhaldi til föstudags.
Lögregla segir að rannsókn þeirra brota sem grunur leikur á að hafi verið framin sé mjög umfangsmikil.
Fréttastofa greindi frá því í gær að lögregla hefði ráðist í samhæfðar aðgerðir í gærmorgun og handtekið nokkurn fjölda fólks, allt að einn tug. Þetta var gert vegna rannsóknar á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu á fíkniefnum og peningaþvætti, samkvæmt heimildum fréttastofu.
Heimildir fréttastofu herma að sumir þeirra sem voru handteknir séu þekktir brotamenn, þeirra á meðal Atli Freyr Fjölnisson sem var þegar í fangelsinu á Litla-Hrauni þegar hann var handtekinn.
Húsleit var gerð víða og hald lagt á peninga og fíkniefni.
Fréttin hefur verið uppfærð.