Sex einstaklingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, í Héraðsdómi Reykjavíkur, vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fíkniefnamisferli og peningaþvætti.Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Greint var frá aðgerðum lögreglu vegna rannsóknarinnar í gær en um 10 manns voru handteknir og einhverjum þeirra hefur því verið sleppt.
Sex í gæsluvarðhald vegna umfangsmikillar rannsóknar á peningaþvætti og fíkniefnamisferli