Knattspyrnufélagið Þór hefur hrundið af stað söfnun til styrktar Gesti Arasyni, liðsstjóra meistaraflokks karla undanfarin ár og einum þekktasta sjálfboðaliða félagsins, eftir að hann greindist með bráðahvítblæði fyrr í þessum mánuði.
Félagið kynnti í gær sérstakt framtak þar sem seld er sérhönnuð treyja merkt „FYRIR GEDDA“ til stuðnings Gesti og fjölskyldu hans. Treyjan kostar 15 þúsund krónur og rennur allur ágóði af sölunni óskiptur til fjölskyldunnar.
Verður á Landspítalanum næstu vikur eða mánuði
Gestur, sem starfar sem verslunarstjóri Símans á Akureyri, greindist með sjúkdóminn í byrjun maí og hóf þegar meðferð á Landspítalanum.
Í færslu sem hann birti á Facebook 6. maí greindi hann frá stöðunni og sagði að fram undan væri löng og krefjandi meðferð.
„Þar verð ég næstu vikur eða mánuði, maður veit aldrei tímann á þessu öllu saman,“ skrifaði hann.
Greiningin hefur vakið sterk viðbrögð meðal stuðningsfólks Þórs og annarra Akureyringa sem þekkja Gest vel fyrir óeigingjarnt starf sitt í þágu félagsins í gegnum árin.
Mikil samstaða í kringum fjölskylduna
Með sölu treyjunnar vilja Þórsarar sýna Gesti og fjölskyldu hans stuðning á erfiðum tímum og leggja sitt af mörkum til að létta undir með þeim meðan meðferð stendur yfir.
Framtakið hefur þegar fengið góðar undirtektir og er vonast til að sem flestir taki þátt í söfnuninni og sýni þannig stuðning við mann sem hefur um árabil lagt félaginu lið af mikilli alúð.
Hér er hægt að panta treyju fyrir áhugasama.