Seldu fjöldskylduútgerð fyrir tvo milljarða í „fjandsamlegu umhverfi“
Fjölskylduútgerð á Árskógssandi var seld til Húsavíkur með tveimur bátum og kvóta í byrjun árs 2025. Fyrri eigendur eru ofarlega á Hátekjulista Heimildarinnar, en framkvæmdastjóri sagði ástæðu sölunnar fjandsamlegt rekstrarumhverfi smærri útgerða og stefnu nýmyndaðrar ríkisstjórnar.
Bára Höskuldsdóttir, fyrrum eigandi útgerðarfélagsins Sólrúnar á Árskógssandi, situr í 17. sæti á Hátekjulista Heimildarinnar í ár og er efst skattgreiðenda í Dalvíkurbyggð.
GPG Seafood ehf. á Húsavík keypti félagið í fyrra og með því bátana Sólrúnu EA 151 og Særúnu EA 251 auk rúmlega 500 tonna kvóta.
Kaupverð var ekki gefið upp en samkvæmt ársreikningi GPG Seafood greiddi félagið tæpa 2,3 milljarða í fyrra fyrir eignarhluta í dótturfélögum. Það stemmir ágætlega við þær fjármagnstekjur sem Bára og aðrir fyrri eigendur Sólrúnar gáfu upp í fyrra.
Bára og Pétur Sigurðsson, eiginmaður hennar og framkvæmdastjóri Sólrúnar, áttu samtals 35,6% hlut í Sólrúnu sem rekið hafði verið af fjölskyldunni í 63 ár. Pétur er ekki á listanum og gera má því ráð fyrir að sameiginlegar fjármagnstekjur þeirra hjóna hafi verið skráðar á Báru. Árstekjur hennar voru 822 milljónir króna í fyrra.
Einn meðeigenda hjónanna í Sólrúnu og bróðir Péturs, Ólafur Sigurðsson, …