Félag atvinnulífs í Stykkishólmi hefur lýst yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðunar um að stöðva áætlunarsiglingar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar.
Í tilkynningu félagsins segir að ákvörðunin hafi óvissu og öryggi í för með sér þar sem hún hafi verið tekin á þeim tíma sem ferðaþjónustan stendur sem hæst.
„Við gerum okkur grein fyrir því að stundum þarf að bregðast hratt við til að tryggja samgöngur þar sem þörf er,“ segir í tilkynningu félagsins.
„Engu að síður blasir við að með þessari ráðstöfun hefur skapast verulegt ójafnvægi, þar sem lausn fyrir eitt svæði hefur í reynd valdið alvarlegum afleiðingum annars staðar. Á meðan aukin áhersla hefur verið lögð á siglingar til Vestmannaeyja hefur lykiltenging yfir Breiðafjörð verið rofin með litlum fyrirvara.“
Hvetja stjórnvöld til að gæta jafnræðis
Í tilkynningunni segir að stöðvun áætlunarsiglinga hafi bein áhrif á rekstur fyrirtækja í Stykkishólmi og víðar. Breiðafjarðarferjan sé lífæð svæðisins, sér í lagi í ljósi vanrækslu vegasamgangna.
Hótel, gistiheimili, veitingastaðir, afþreyingarfyrirtæki og verslanir verða þannig fyrir miklu tekjutapi sem hvorki verður bætt upp síðar né án verulegra áhrifa á afkomu margra fyrirtækja. Þá segir félagið minni fyrirsjáanleika í samgöngum áhyggjuefni þar sem ferðaskrifstofur, skipuleggjendur og fereðamenn treysti á stöðugleika og festu við skipulagningu ferða.
„Við hvetjum stjórnvöld til að sýna jafnræði milli landshluta og grípa tafarlaust til aðgerða sem tryggja áframhaldandi, áreiðanlegar siglingar yfir Breiðafjörð eða finna aðrar lausnir sem draga úr þeim skaða sem þegar er orðinn og koma í veg fyrir frekara tjón.“