Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ er kominn í leyfi og hefur tilkynnt um starfslok. Hún segir stjórn félagasamtakanna bera ábyrgð á ástandinu sem upp er komið, en forstjóri samtakanna og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík sögðu báðar upp störfum í síðasta mánuði.
Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir stjórn SÁÁ hafa afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna, sem sé óviðunandi. Hún treysti sér ekki til að vinna faglegt heilbrigðisstarf undir nýjum utanaðkomandi forstjóra.
Valgerður segir starfslok Ragnheiðar Huldu Friðriksdóttur forstjóra hafa verið í óþökk allra nema stjórnarinnar. SÁÁ tilkynnti um starfslok Ragnheiðar í byrjun ágúst og auglýsti starfið laust til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út á morgun.
Valgerður segir að með ráðningu nýs utanaðkomandi forstjóra sé mikil áhætta tekin í miðri innleiðingu á nýjum heildarsamningi SÁÁ við Sjúkratryggingar Íslands sem undirritaður var í desember.
Sagan endurtaki sig með nýju fólki
Þóra Björk Ingólfsdóttir staðfestir í samtali við fréttastofu að hún hafi sagt starfi sínu sem fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík lausu vegna afskipta stjórnarinnar af faglegu starfi.
Þóra segir rekstur félagasamtaka á heilbrigðisþjónustu fullreyndan því sagan endurtaki sig með nýju fólki. Hún var ein þeirra átta sem sagt var upp störfum hjá SÁÁ árið 2020. Um ákvörðun stjórnarinnar sköpuðust miki átök, Valgerður sagði þá einnig starfi sínu lausu og vantrausti var lýst á hendur stjórnarinnar.
Í það sinn enduðu átökin með afsögn félagsstjórnar SÁÁ; Þóra og hin sjö voru endurráðin til starfa sinna og Valgerður hætti við að hætta.
Valgerður segir stöðuna sem upp er komin núna vera mjög sorglega því staða SÁÁ hafi aldrei verið betri eftir að áðurnefndur heildarsamningur SÁÁ og sjúkratrygginga var undirritaður.
Hún segist reiðubúin að draga uppsögn sína til baka ef stjórnin bakki með ákvarðanir sínar.