Segir útreikninga Morgunblaðsins út í hött
Hagfræðingar segja fullyrðingar Morgunblaðsins um að matarkarfan sé 40 prósent ódýrari en í ESB ekki standast skoðun. Kaupmáttur og verðlag séu hvor sinn hluturinn og það geti verið flókið að bera það saman milli landa.
Hagfræðingar segja fullyrðingu Morgunblaðsins um að matarkarfan sé 40 prósent ódýrari á Íslandi en í aðildarríkjum ESB annars vegar villandi og hins vegar „út í hött“.
Formaður Neytendasamtakanna kannast ekki við að matarkarfan hafi lækkað um 40 prósent á Íslandi. Það lýsi í það minnsta ekki upplifun skjólstæðinga samtakanna.

Morgunblaðið birti umdeilda frétt síðustu helgi þar sem því var haldið fram fullum fetum að matarkarfan á Íslandi væri 40 prósent ódýrari en í aðildarlöndum Evrópusambandsins. Blaðamaður Morgunblaðsins bar þar saman kaupmátt Íslendinga og verðlag í hlutfalli við ráðstöfunartekjur á mann eins og það var orðað í frétt blaðsins. Heimildin leitaði til hagfræðinga og fleiri sérfræðinga til þess að kanna sannleiksgildi fréttar Morgunblaðsins, sem viðmælendur töldu að minnsta kosti villandi, í versta falli algjörlega ranga.
Ráðstöfunartekjur lækka ekki verð
„Eftir því sem ég skil …