Segir það vera Þjóðaríþrótt Íslendinga að tala niður atvinnulífið
Segir viðhorfið orðið einskonar hefð
Hreiðar segir að gagnrýni á atvinnulífið hafi gengið of langt og orðið að eins konar menningu.
„Ég held að það sé búið að vera þjóðaríþrótt Íslendinga að tala niður atvinnulífið síðustu 20 árin,“ segir hann.
Hann bendir á að eftir bankahrunið hafi margir í fjármálageiranum upplifað mikla skömm og ótta.
„Sumir bankamenn þurftu bara að ganga með veggjum, af skömm og ótta við álit samfélagsins á þeirra störfum,“ segir hann og kallar það skammarlegt hvernig komið hafi verið fram við atvinnulífið.
Gagnrýnir umræðu um skattamál
Í viðtalinu snertir hann einnig á skattamálum.
„Það skattleggur sér enginn til velsældar,“ segir Hreiðar og gefur í skyn að of mikil áhersla sé lögð á skattheimtu í opinberri umræðu.
Hreiðar setur einnig spurningarmerki við umfjöllun fjölmiðla um atvinnulífið og nefnir dæmi þar sem hann telur að árangur fyrirtækja fái ekki næga athygli og nefnir skort á umfjöllun um fyrirtækið Kerecis og árangur þess máli sínu til stuðnings.
Hann tekur þó fram að sú gagnrýni kunni að vera ónákvæm en segir engu að síður að þetta endurspegli ákveðna tilhneigingu í umræðunni.
Að lokum segir hann mikilvægt að fleiri raddir í líkingu við Hluthafaspjallið, sem fjalli um atvinnulífið með gagnrýnum en jafnframt sanngjörnum hætti, komi fram á sjónarsviðið.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt hlusta á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.