Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun - Vísir

Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun - Vísir

Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun - Vísir

Alexander Ingi Olsen, flugmaður hjá Icelandair, segir tilboðið hafa verið kynnt flugmönnum í byrjun vikunnar. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafa verið í fjölmiðlabanni vegna viðræðnanna.

„Mín upplifun af kollegum mínum er sú að þeir ráði ekki við vinnuálagið sem þeim er ætlað í dag. Þá eiga þeir erfitt með að semja um að vinna meira.“

Að sögn Alexanders var tilboðinu ekki vel tekið meðal flugmanna.

„Þeir vilja að við vinnum meira fyrir lægri laun. Það gengur ekki upp.“

Flugmenn tóku á sig kjaraskerðingu við endurreisn Icelandair árið 2020. Þá var samið um aukið vinnuframlag og launafrost í þrjú ár, á sama tíma og félagið glímdi við afleiðingar heimsfaraldursins.

„Við erum ekki að fara fram á neinar launahækkanir. En menn geta ekki samið um meira vinnuálag þegar þeir ráða ekki við vinnuálagið sem er fyrir.“

Segir allt stranda á kostnaðinum

Alexander segir flugmenn gera sér grein fyrir stöðu félagsins. Vandinn sé að kröfur um minna álag eða betri vernd í kringum hvíld séu metnar sem aukinn kostnaður.

„Frá okkar sjónarhorni þarf eitthvað að breytast. Frá sjónarhorni fyrirtækisins kostar það peninga og það er ekki í boði. Þá fer allt í lás.“

Hann hefur starfað hjá Icelandair í um tíu ár. Tengsl fjölskyldunnar við flugið ná þó lengra aftur; afi hans starfaði hjá Loftleiðum og faðir hans einnig í fluginu.

„Ég var rosalega ánægður og stoltur að vera orðinn flugmaður en ég er ekkert viss um að ég muni endast næstu tuttugu eða þrjátíu ár í þessu.“

Frídagar sem nýtast ekki alltaf til hvíldar

Eitt helsta ágreiningsefnið snýr að vaktafyrirkomulagi. Alexander segir fjölda frídaga ekki segja alla söguna, því oft fari þeir í að ná sér eftir næturflug, löng flug og tímamismun.

„Þú færð kannski þína níu frídaga en ert dauðuppgefinn og sefur þá frá þér. Svo tekur það einn til tvo daga að ná sér eftir tímamismuninn og þá ertu kannski aftur mættur í morgunflug.“

„Ég og fleiri höfum stundum talað um að það er engin launaupphæð sem er þess virði að við séum til í að selja frá okkur annaðhvort heilsuna eða þá að vera hluti af lífum barnanna okkar. Það er enginn til í það."

Hann segir samanburð við erlend lággjaldafélög ekki ná utan um vandann hjá Icelandair, þar sem blanda næturfluga, morgunfluga og tímamismunar vegi þungt.

„Icelandair vill gjarnan bera saman vinnuálag hjá lággjaldafélögunum við hvernig þetta er hjá okkur en það segir ekki alla söguna. Ég myndi mikið frekar vilja vinna fleiri flugtíma með samskonar vaktaskrám og eru hjá EasyJet, Ryanair eða Wizz Air þar sem flugmenn vinna nær aldrei á nóttunni. En ekki svona næturvakt, morgunvakt, næturvakt, morgunvakt eins og það er gjarnan hjá okkur. Líkaminn nær aldrei takti og við getum ekki flogið jafn mikið.“

Að hans mati er álagið farið að hafa áhrif á líf flugmanna utan vinnu.

„Maður fer inn í þetta eins og fallegt jarðarber og kemur út eins og soðin rúsína. Maður á ekkert eðlilegt líf fyrir utan vinnuna.“

Segir háar launatölur ekki lýsa stöðu flestra

Laun flugmanna hafa verið til umræðu í tengslum við deiluna. Morgunblaðið greindi til að mynda frá því í gær að flugstjórar hjá Icelandair væru með tæpar þrjár milljónir króna á mánuði í laun. Alexander segir þær tölur sem hæst hafa borið ekki endurspegla kjör almennra flugmanna.

Samninganefnd Icelandair í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni. Vísir/Vilhelm

„Ég er ekki með þessi laun og ég þekki engan sem er með þessi laun. Ég er ekki flugstjóri. Þegar svona tölur eru birtar er oft verið að slíta hluti úr samhengi.“

Hann segir flugmenn ekki hafna því að starfið sé krefjandi eða að félagið þurfi sveigjanleika. Mörkin séu hins vegar komin of langt.

„Ég vil halda eðlilegum flugmannalaunum en fyrst og fremst vil ég vinna vinnuálag sem ég ræð við. Þetta má vera vaktavinna, en ég þarf að geta lifað.“

Óttast að störf færist úr landi

Áhyggjur flugmanna snúa einnig að hugmyndum um aukna starfsemi tengda Möltu og breytingum á ákvæðum um forgangsrétt. Alexander segir flugmenn óttast að slíkar breytingar geti veikt stöðu þeirra til framtíðar.

„Frá okkar sjónarhorni snýst þetta meðal annars um hvort verið sé að flytja störfin okkar úr landi.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Sigurjón Ólason

Hann efast um að sú leið skili Icelandair þeim ávinningi sem vonast sé eftir.

„Ég hef enga trú á því að þetta muni virka. Ég held að þeir fái ekki endilega ódýrari flugmenn með þessu.“

Neitar því að um aðgerðir sé að ræða

Icelandair hefur áður bent á að félagið þurfi svigrúm til að manna flug. Alexander segir hins vegar ekki hægt að gera ráð fyrir að flugmenn vinni reglulega á frídögum sínum.

„Ég er ekki í neinum aðgerðum og mér finnst ekki að flugmenn eigi að vera í aðgerðum. En ef það er hringt í mig á frídegi og ég er of þreyttur þá er svarið nei. Ég get það ekki.“

Hann segir það benda til kerfisvanda ef reksturinn gangi út á að flugmenn selji frá sér frí.

„Það er ekki hægt að ganga svona fram af mönnum.“

„Eins og maður sé að vinna hjá öðru fyrirtæki“

Alexander segir margt innan Icelandair vera til fyrirmyndar. Hann nefnir aðstöðu á skrifstofum félagsins og segir þar virðast tekið meira tillit til eðlilegs jafnvægis milli vinnu og einkalífs.

Frá höfuðstöðvum Icelandair á Völlunum í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm

„Á skrifstofunni er tekið tillit til þess að fólk þurfi að geta átt eðlilegt líf meðfram vinnunni. Svo mætir maður í flugvélina og þá er eins og maður sé að vinna hjá öðru fyrirtæki.“

Hann segir flugmenn ekki vera að biðja um átakalaust starf. Þeir viti að starfinu fylgi ábyrgð, óregla og vaktavinna. Spurningin sé hvort hægt sé að endast í því.

„Ég hef rætt það við konuna mína hvort ég þurfi að fara að skrá mig í háskóla. Ég geri þetta ekki næstu þrjátíu árin eins og þetta er í dag.“

#icelandair #krefjast #meiri #segir #vinnu

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262896563d/segir-icelandair-krefjast-meiri-vinnu-fyrir-laegri-laun

📰 Aðrar fréttir

Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 1
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 1
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 1
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 1
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 1
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 1
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 2
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 2
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 2
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 2
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 2
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
📅 28.10.2026 👁️ 2
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
The chancellor announced a series of measures which will impact under-25 year-olds from housing to minimum wage.
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
📅 28.10.2026 👁️ 2
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu ...
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
📅 28.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
His arrival in the US ends speculation about his whereabouts after he failed to comply with an order to surrender his passports.
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir

Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns o...
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
📅 28.10.2026 👁️ 2
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
The chancellor targets the cost of living amid global economic turmoil but opposition parties say he has not been bold enough.
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
Leikkonan Jenette Goldstein, sem gerði garðinn frægan í hasarmyndum og vísindaskáldskap, á níunda og tíunda áratugnum er óþekkjanleg í dag. Hún hefur ...
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
📅 28.10.2026 👁️ 4
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk T...
Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk

Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“
Móðir í bresku borginni Liverpool er bálreið eftir að hún fékk vandræðalegt bréf frá grunnskóla barnsins síns. Var henni bannað að mæta í náttfötunum ...
Hið opinbera gangi of langt í uppsögnum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hið opinbera gangi of langt í uppsögnum
Forseti ASÍ telur hið opinbera hafa gengið of langt í uppsögnum að undanförnu. Hann segir einkennilegt að vísa til þess að með uppsögnum sé verið að t...
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?
📅 28.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?
Hugmyndin um vestrænt lýðræði er falleg og því miður dálítið barnaleg. Við opnum kjörstaði, teljum atkvæði, treystum á fjölmiðla og gerum ráð fyrir að...
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi - Vísir
Á tímabilinu 6. maí til 21. september 2024 sveik starfsmaðurinn, í blekkingarskyni og án heimildar, út reiðufé að verðmæti 780 þúsund króna, að því er...
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
📅 28.10.2026 👁️ 5
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
Árið 2025 voru rétt rúmlega 80 þúsund flugleggir keyptir með Loftbrú.Kostnaður ríkisins við niðurgreiðsluna nam rúmlega 740 milljónum.Til stendur að g...
Healey buys himself some time, but big questions unanswered
📅 28.10.2026 👁️ 4
Healey buys himself some time, but big questions unanswered
The chancellor talked of charting a new course for Britain, but the impact of Iran war has limited his options.
Engar vís­bendingar og litlar upp­lýsingar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Engar vís­bendingar og litlar upp­lýsingar - Vísir
Leitaraðgerðir fóru fram á vettvangi í Grindavík í gær og voru á ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fyrir lá ítarlegt áhættumat í fjórum þáttum en...
Engar vís­bendingar og lítið af upp­lýsingum - Vísir

Boluda Shipping kaupir Samskip
📅 28.10.2026 👁️ 5
Boluda Shipping kaupir Samskip
Spænska fjölskyldufyrirtækið Boluda Shipping hefur keypt allt hlutafé flutningsfyrirtækisins Samskipa. Skrifað var undir kaupsamning á skrifstofu Sams...
Ís­lendingar losa meira en Evrópu­búar í lang­flestu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Ís­lendingar losa meira en Evrópu­búar í lang­flestu - Vísir
Íslandi hefur ítrekað verið lýst sem leiðandi í loftslagsmálum enda sé hér nær ekkert losað af gróðurhúsalofttegundum til þess að framleiða raforku og...
„Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti“
📅 28.10.2026 👁️ 5
„Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti“
Íris Erlingsdóttir skrifar: „Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti,“ segir Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness. Orðin l...
Clock ticks down for Canada lotto winner to claim massive prize
📅 28.10.2026 👁️ 5
Clock ticks down for Canada lotto winner to claim massive prize
It's rare for such a large lottery jackpot to go unclaimed - this one is worth C$40m (£21.4m).
Í fyrsta sinn utan Úkraínu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Í fyrsta sinn utan Úkraínu - Vísir
Í fréttatilkynningu segir:  „Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er liður í því að standa vörð um menningararf Úkraínu og efla ...
Erlent skipafélag kaupir Samskip og dótturfélög
📅 28.10.2026 👁️ 4
Erlent skipafélag kaupir Samskip og dótturfélög
Erlent skipafélag hefur keypt flutningsfyrirtækið Samskip og dótturfélög. Frá þessu greinir Vísir sem segir að starfsmenn Samskipa hafi verið upplýsti...
Þolinmæði Jóns að þrotum komin eftir Kveiksþáttinn: „Ég skil ekki þessa fyrirstöðu og aðgerðaleysi“
📅 28.10.2026 👁️ 3
Þolinmæði Jóns að þrotum komin eftir Kveiksþáttinn: „Ég skil ekki þessa fyrirstöðu og aðgerðaleysi“
Þingmaðurinn Jón Gnarr segir að það þurfi úrræði fyrir börn með flóknan vanda, ekki eftir nokkur ár heldur núna, þolinmæði hans er algjörlega þrotin. ...
Netanyahu's bloc leading Israel election but short of majority, partial results show
📅 28.10.2026 👁️ 5
Netanyahu's bloc leading Israel election but short of majority, partial results show
With 85% of ballots counted, Netanyahu's Likud party and its allies are set to win 53 seats in the 120-seat Knesset.
Chris Mason: Budget felt cautious despite range of small measures
📅 28.10.2026 👁️ 3
Chris Mason: Budget felt cautious despite range of small measures
The chancellor has had to grapple with a mix of public finances and household finances being a mess.
Skip­verjar skemmti­ferða­skips sitja fastir í Kambódíu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Skip­verjar skemmti­ferða­skips sitja fastir í Kambódíu - Vísir
Ferðin hófst í október 2024 og ætluðu ferðalangarnir að heimsækja tæplega 150 lönd á þremur og hálfu ári. Í umfjöllun BBC kemur fram að um tvö hundruð...
Bolsonaro kominn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 4
Bolsonaro kominn til Bandaríkjanna
Flavio Bolsonaro, sem tapaði fyrir Lula Da Silva í forsetakosningum í Brasilíu á sunnudag, er lentur í Bandaríkjunum. Myndir voru teknar af honum á fl...
At the scene of Spain's deadly train crash
📅 28.10.2026 👁️ 3
At the scene of Spain's deadly train crash
People have been killed after a Spanish high-speed train collided with another train south of the capital Madrid, making this the country's worst disa...