Meginmarkmið nýsamþykktrar fjárlagaáætlunar fyrir árin 2027 til 2031 er að stöðva hallarekstur ríkissjóðs árið 2027, lækka skuldahlutfall hins opinbera og skapa stöðugleika í efnahagslífinu.
Í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir að í áætluninni sé haldið aftur af útgjaldavexti og fjármunum sé forgangsraðað til að styrkja grunninnviði.
Reka ríkissjóð af aga og festu
„Þessi fjármálaáætlun markar nokkur tímamót því í henni er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn í nær áratug. Hún endurspeglar þá stefnu ríkisstjórnarinnar að reka ríkissjóð af aga og festu. Við áætlun að draga úr skuldum og skapa meira svigrúm til fjárfestinga,“ er haft eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningunni.
Áhersla sé lögð á ábyrgan rekstur ríkissjóðs samhliða áframhaldandi uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu, samgöngum, menntamálum, málefnum barna og þjónustu við eldra fólk.
„Það er leiðin að auknum stöðugleika, meiri verðmætasköpun og sterkari stöðu heimila og fyrirtækja,“ segir Daði.
Fjármálaáætlunin er grunnurinn að fjárlagafrumvarpi ársins 2027 sem lagt verður fram við þingsetningu í haust.