Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, segir að Evrópa standi í veginum fyrir lausn á innrásinni í Úkraínu.
Í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York sagði Lavrov að Evrópa væri að gera allt til að hindra friðarviðræður en Bandaríkjastjórn hefði hins vegar áhuga á þeim.
Hann sagði að markmiðum hinnar sértæku hernaðaraðgerðar, líkt og Rússar kalla innrásina, verði náð. Ógninni gagnvart öryggi Rússlands verði eytt og lífið verði friðsamt eftir það. Hann bætti við að þetta eigi eftir að raungerast, óháð aðstæðum.
Utanríkisráðherrar Rússlands og Þýskalands funduðu í fyrsta sinn síðan innrásin hófst
Fyrir ræðu sína átti Lavrov fund með utanríkisráðherra Þýskalands, Johann Wadephul, en það er í fyrsta sinn síðan innrásin hófst sem utanríkisráðherrar landanna hittast.
Wadephul hvatti Rússa til að hætta við þá vegferð að stigmagna átökin gagnvart Þýskalandi, Evrópu og NATO. Hann gerði Lavrov það ljóst að þrátt fyrir nýleg atvik fjölþáttaógna í Þýskalandi, líkt og drónaatvikið á flugvellinum í Leipzig eða frekari árásir, ætli Þýskaland ekki að láta af stuðningi sínum við Úkraínu.
The Guardian segir að Lavrov hafi tjáð sig um fund þeirra á blaðamannafundi í gær. Lavrov sagði að ekkert nýtt hefði komið út úr fundi hans og Wadephul.
„Ég sagði við hann hreinskilnislega að hann (Wadephul) hefði bara getað hringt í mig og sagt mér að lesa tilkynninguna sína. Hann ítrekaði afstöðu sína þar sem hann fordæmir Rússland. Þið getið sjálf dæmt hvort það teljist vera samtal eða ekki,“ sagði Lavrov.
Lavrov hefur setið lengst í embætti ráðherra í Rússlandi. Hann sakaði Þýskaland nýverið um að vilja fara í stríð á ný og er sá rússneski embættismaður sem hefur gagnrýnt Vesturlönd hvað harðast.
Ekkert lát á átökum
16 voru drepnir í árásum Rússa og Úkraínumanna síðastliðinn sólarhring. Úkraínumenn sögðu að Rússar hefðu drepið sex í norðaustur Sumy, Zaporizhzhia og Dnipropetrovsk héraði. Rússar sögðu Úkraínumenn hafa drepið fjóra í héruðunum Krasnodar og Belgorod og sex til viðbótar á hernumdum svæðum í suðurhluta Úkraínu.