Á mánudaginn, tveimur árum eftir fyrra atvikið, lendir hún í því að gengið er inn á hana aftur í inniklefa Sundhallar Reykjavíkur.
Við heyrum frá henni og forstöðumanni Sundhallarinnar sem harmar atvikin. Verkferlar verði endurskoðaðir.
Við tökum einnig stöðuna við Hormússund en Íransher hefur lokað sundinu á nýjan leik til að mótmæla herkví Bandaríkjahers. Skotið hefur verið á flutningaskip.
Við heyrum einnig frá formanni Læknafélags Íslands en tólf formenn fag- og stéttarfélaga taka höndum saman til að mótmæla uppsögnum trúnaðarmanna. Þetta kemur í kjölfar uppsagnar Ragnars Freys Ingavarssonar, formanns Læknafélags Reykjavíkur, sem hefur vakið ugg víða.
Í sportinu hitum við upp fyrir viðureign íslenska kvennalandsliðsins sem mætir Englandi síðar í dag.