Hvenær kom fyrsta Rómafjölskyldan til Íslands? Árið 1911 samkvæmt rannsóknum Guðmundar Hálfdánarsonar sagnfræðings. Fjölskyldan er kölluð Demeter-fjölskyldan.
Guðmundur segir að talsverðar heimildir séu til um þessa fjölskyldu, meðal annars frá Danmörku. Höfuð fjölskyldunnar var fjölskyldumóðirin Rebekka Demeter. „Það sem við getum fundið eru fyrst og fremst blaðaheimildir. Það eru fréttir um komu þessarar fjölskyldu. Hún kemur hér í byrjun haustsins 1911. Við getum fylgt ferðalagi fjölskyldunnar um landið, það eru tekin viðtöl við þau og þeim er sýndur ákveðinn áhugi,“ segir Guðmundur.
Þessi Rómafjölskylda reyndi að villa á sér heimildir á Íslandi. Vegna þeirra voru fordómar ríkjandi gagnvart Rómafólki. Fjölskyldan sagðist vera Lappar.
Guðmundur Hálfdánarson hefur stundað rannsóknir á sögu Roma-fólks á Íslandi í rannsóknarverkefni um sögu og stöðu Roma-fólks. Hann bendir á að í dag séu um 500 manns, aðallega rúmenskir ríkisborgarar, sem teljast vera Roma-fólk búsett á Íslandi í dag.
Rætt er við Guðmund Hálfdánarson og fjallað um þessa Rómafjölskyldu í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Lengri og meiri saga á Norðurlöndunum
Rómafólk var lengi vel kallað sígaunar á íslensku, líkt og í öðrum evrópskum tungumálum. Gypsy á ensku, zigenare á sænsku og gitano á spænsku. Þetta orð er hins vegar niðrandi og rasískt og er ekki lengur notað af þeim sem vilja tala um Rómafólk með hlutlausum hætti.
Á Íslandi eru ekki heimildir fyrir því að Rómafólk hafi dvalið hér eða sest hér að fyrir þann tíma sem Guðmundur lýsir.
Það hefur hins vegar búið á hinum Norðurlöndunum og í Bretlandi um aldir, líkt og annars staðar í Evrópu.
Fólk úr Demeter-fjölskyldunni lenti í eftirliti
Árið 2013 kom upp stórt hneykslismál í Svíþjóð þegar greint var frá því að sænska ríkið hefði haldið ólöglega skrá yfir Rómafólk í landinu í áratugi. Í þessari umræðu var einnig fjallað um það að sænska ríkið hefði vanað Rómafólk í landinu á árunum 1935 til 1975 svo það fjölgaði sér ekki.
Mikið var fjallað um þessi fréttamál í sænskum fjölmiðlum árið 2015. Það endaði með því að sænska ríkið greiddi fólkinu miskabætur vegna eftirlitsins sem það sætti.
Saga Rómafólks á Norðurlöndunum er því lituð af alls kyns rasisma og ofbeldi gegn því.
Í fréttaflutningnum frá Svíþjóð um skrárnar sem yfirvöld héldu yfir Rómafólk kom fram að fylgst var með mörgum úr Demeter-fjölskyldunni í landinu. Einn af þeim sem fylgst var með var Markus Demeter sem var fæddur 1910 og dó 1970.
Meðlimir í Demeter-fjölskyldunni lentu því bæði í ofbeldi og mismunun vegna uppruna síns í Danmörku, eins og Guðmundur lýsir í Þetta helst, sem og í Svíþjóð, eftir komuna til Íslands.