Hútar í Jemen segja að Sádí-Arabar hafi gert 40 loftárásir.
Hútar stjórna stórum hluta norðvestanverðs Jemens. Þeir hófu í síðustu viku sókn gegn stjórnarher Jemens sem nýtur stuðnings sádíarabískra stjórnvalda.
Hútar gerðu einnig árásir á sádíarabískt landsvæði og særðu tugi manna.
Sádí-Arabar og bandamenn þeirra sögðu í gær að Hútar hefðu skotið eldflaugum og drónum að borgum í sunnanverðri Sádí-Arabíu.