RÚV-aktívismi

RÚV-aktívismi

RÚV-aktívismi

RÚV-aktívismi

FréttinInnlent, Páll Vilhjálmsson, RÚVLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Snorri Másson þingmaður Miðflokksins hitti naglann á höfuðið er hann sagði RÚV stunda pólitískan aktívisma en ekki fréttamennsku, sambanber viðtengda frétt. Snorri kom við kauninn á varðhundum aktívistanna á Efstaleiti. Tveir RÚV-arar, annar alþingi en hinn að safna fyrir skattaskuld, risu upp á afturfæturna.

Til að skilja eðli aktívista-blaðamennsku, og aðgreina hana frá hefðbundinni blaðamennsku, þarf að hafa fáein atriði í huga er lúta að faglegum þáttum sem sjaldan eru í almennri umræðu.

Lifibrauð fjölmiðla er fréttir. Keppikefli blaðamanna er að vera fyrstir með fréttina, skúbba. Lesendur meta fréttirnar í samhengi við hvar þær birtast. Frétt í Morgunblaðinu er metin á einn hátt en tíðindi í Heimildinni á annan veg. Gæði, eða skortur á þeim, eru innbyggð í ritstjórnir fjölmiðla.

Birtist sama fréttin, með áþekkum áherslum, í tveim eða fleiri fjölmiðlum verður hún trúverðugri en annars. Litið er svo á að eftir því sem fleiri ritstjórnir birta frétt hljóti að vera eitthvað til í henni. Sú er þó ekki alltaf raunin, en það er önnur saga.

Blaðamenn sem skúbba eru með frumfrétt, ný tíðindi. Eftirfrétt er afrit af frumfrétt, stundum með viðbót. Framhaldsfréttir eru þær kallaðar sem bæta við þekkt fréttamál.

Fjölmiðlar starfa aldrei þannig að einn fjölmiðill aflar heimilda, vinnur fréttina og sendir á aðra fjölmiðla til birtingar. Nema, vel að merkja, þegar aktívismi kemur í stað blaðamennsku.

Akvívista-blaðamennska leggur ekki mest upp úr skúbbi/frumfrétt heldur hinu að setja á flot pólitíska fréttafrásögn. Markmiðið er ekki upplýsing heldur samfélagslegt áhrifavald.

Víkur nú sögunni að RÚV og aktívisma ríkismiðilsins.

Vorið 2021 var einkasími afritaður á ritstjórn RÚV. Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks stóð fyrir afrituninni. RÚV og Kveikur höfðu frá 2019 stritast við að halda á lífi fréttafrásögn um að norðlenska útgerðin Samherji væri sek um stórfelldar mútugjafir í Namibíu. Á alþingi tóku vinstriþingmenn undir með ríkismiðlinum. Helsti fréttamaðurinn í þeirri frásögn, Helgi Seljan, varð fyrir höggi í mars 2021. Siðanefnd RÚV úrskurðaði að fréttamaðurinn hefði alvarlega brotið gegn siðareglum RÚV. Brot Helga var að hann stundaði aktívisma en ekki fréttamennsku gegn Samherja. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri lagði siðanefndina niður í kjölfarið.

Gögnin í einkasímanum höfðu ekkert með veiðar og vinnslu í Namibíu að gera. Eigandi símans, Páll skipstjóri Steingrímsson, hafði aftur borið blak af vinnuveitanda sínum, Samherja, með skrifum í fjölmiðla. Þóru og ritstjórn RÚV þótti líklegt að eitthvað krassandi um Samherja mætti finna í síma skipstjórans. Siðadómsins yfir Helga skyldi hefnt og lífi blásið fréttafrásögnina um íslenska spillingu í Namibíu.

Þóra fékk, í febrúar 2022, stöðu sakbornings í lögreglurannsókn á byrlunar- og símamálinu. Þóra  gerði ekkert rangt sögðu Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Heiðar Örn fréttastjóri í yfirlýsingu, sem endurbirt er í ársskýrslu ríkismiðilsins. Kjarninn í Þóru-vörn þeirra félaga er:

Forsenda fyrir því að fjölmiðlar geti rækt hlutverk sitt er að þeir geti aflað upplýsinga um mál sem hafa þýðingu fyrir almenning og miðlað þeim án afskipta annarra. Einn þáttur í þessu sjálfstæði fjölmiðla er að þeir geti tekið við slíkum upplýsingum í trúnaði án þess að þurfa að gera grein fyrir hvaðan eða frá hverjum þær stafi, […]Þá er ljóst að hafi gögn að geyma efni, sem eiga erindi til almennings og varða mál, sem styr hefur staðið um í þjóðfélaginu, er fjölmiðlum rétt að fjalla um slíkt, jafnvel þótt um sé t.d. að ræða einkagögn sem fjölmiðlum eru fengin. Ríkisútvarpið og starfsmenn þess hafa þessi sjónarmið að leiðarljósi í sínum störfum, enda grundvallarþáttur í lýðræðisþjóðfélagi, sem virða verður í hvívetna.(feitletrun pv)

Útvarpsstjóri og fréttarstjóri eru á einu máli að sjálfsagt sé að fjölmiðill taki við illa fengnu efni sem eigi ,,erindi til almennings“ og taki ákvörðun um hvort frétt sé unnin og birt. Þóra Arnórsdóttir tók við gögnum, það viðurkenna Stefán og Heiðar Örn, en Þóra og RÚV frumbirtu enga frétt. Ekki birtist stafkrókur í RÚV með vísun í gögn úr síma skipstjórans.

Þóra og RÚV ákváðu að frétt yrði skrifuð á ríkismiðlinum og send í tvíriti til birtingar á Stundinni og Kjarnanum, sem nú heita Heimildin. Stundin og Kjarninn sögðu fréttina samtímis morguninn 21. maí. Tveir fjölmiðlar með sömu fréttina. Það hlýtur að vera eitthvað til í þessu, sagði fólk. Þannig varð til efni í framhaldsfréttir í anda aktívista-blaðamennsku um skæruliðadeild Samherja.

Er fjölmiðill veitir gögnum viðtöku er tilgangurinn að birta frétt, eigi efnið ,,erindi til almennings.“ Um var að ræða spjall sjómanns við vinnufélaga um hve íslenskir fjölmiðlar væru ónýtir. Þar sem efnið var ekki birt á RÚV hlýtur það að hafa verið mat Þóru að fréttin ætti ekki erindi til almennings. Það er staðfest í orðum Stefáns útvarpsstjóra og Heiðars Arnar fréttastjóra annars vegar og hins vegar verkum Þóru – að birta ekki.

Akívista-skipulagið á RÚV var að Stundin og Kjarninn riðu á vaðið með frétt sem ekki hélt máli. Inntak fréttarinnar er að Páll skipstjóri hefur lítið álit á íslenskum blaðamönnum, RÚV-urum sérstaklega. Lái honum hver sem vill. Eftir að fréttin um skæruliðaskipstjórann var komin út, með tilheyrandi dreifingu á samfélagsmiðlum, kom RÚV í humátt á eftir með eftirfréttir. RÚV-aktívistarnir ráku hljóðnema upp í þingmenn og ráðherra og spurðu: er þetta ekki voðalegt með viðhorf skipstjórans hjá Samherja? Svakalegt sem hann segir um okkur sannleikshetjurnar, blaðamenn, er það ekki? (Ok, spurningarnar voru ekki svona orðaðar en þetta var sjónarmiðið að baki).

RÚV sá um fréttaöflun, skrifaði tvær útgáfur af sömu fréttinni og sendi til birtingar á tvo fjölmiðla. Þetta er ekki blaðamennska heldur aktívismi. Vinstriflokkarnir á alþingi verja RÚV fram í rauðan dauðann enda ríkisaktívisminn á Efstaleiti fyrst og síðast í þágu vinstristjórnmála.

Fyrir fjórum dögum var Helgi Seljan kallaður úr forfallaleyfi, hann er oftar í leyfi en í vinnunni, til að vera andlit RÚV-fréttar um að Trump ásælist Ísland. Tilgangur fréttarinnar er að hafa áhrif á Evrópuumræðuna eftir að þjóðin sagði nei 29. ágúst. Samfylkingin stendur höllum fæti í umræðunni og þá er aktívistamiðstöðin á Efstaleiti virkjuð.

#aktívismi #rúv


Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/09/14/ruv-aktivismi/

📰 Aðrar fréttir

Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
Hönnuðir og listamenn stigu á stokk og kynntu það sem þeir höfðu aðallega verið að fást við að undanförnu í sinni sköpun. Mikið var um hlátrasköll og ...
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
📅 29.10.2026 👁️ 1
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
Fulltrúar meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í umhverfis- og skipulagsráði fagna hugmyndum um að byggð verði blönduð byggð ofan á bílastæði í Ármúl...
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
Tæplega 71 prósent Íslendinga nota gervigreind til að afla sér frétta. Karlar eru líklegri til þess að gera það oftar en konur.Þetta er niðurstaða kön...
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
Nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í dag við Ilulissat, þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður ekki síst f...
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
📅 29.10.2026 👁️ 1
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
The prime minister did not outline a timetable, while opponents questioned the Budget's lack of detail on welfare reform.
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
Sveitarfélög á Suðurlandi krefjast þess að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og segja að með nýjum álögum...
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Almannaróm. Af þeim sem nýta sér gervigreind á íslensku kjósa tæp 89 prósent þeirra að not...
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
Melkorka greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram-hringrás sinni í gær. „Eftir að hafa hugsað málið fram og til baka vildi ég tilkynna að ég er ...
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína...
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
📅 29.10.2026 👁️ 2
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
Bandaríski gamanmyndaleikarinn Jon Lovitz hefur svarað ásökunum Crystal Harris, ekkju Playboy-stofnandans Hugh Hefner, um að hann hafi verið einn mest...
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
📅 29.10.2026 👁️ 2
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
Það er mikill sigur fyrir heilbrigða skynsemi að Syddanmark-hérað skuli nú loksins hafa fellt tillöguna um hina mjög umdeildu LGBTQ+ handbók með atkvæ...
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13, segir að hann hafi veist að konunni með ofbeldi og reynt að svipta ha...
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
📅 29.10.2026 👁️ 2
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
From Sunday anyone weighing more than 19st 7Ib (124kg) will be banned from flying to an offshore platform.
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
📅 29.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
The defeated presidential candidate says he will lead the opposition from the US.
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
Hvorug stærstu flokkablokkanna í ísraelskum stjórnmálum hefur tryggt sér meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem haldnar voru á þriðjudag. Flokkur fo...
Verðbólgan enn „óþægilega há“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Verðbólgan enn „óþægilega há“
Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið. Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við Háskól...
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er nú þannig að fjárhagsstaða bæjarins kallar á miklar aðgerðir. Við þurfum að spara upp undir þrjá milljarða á næsta ári og þetta er liður í því...
Þarft þú meira járn?
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þarft þú meira járn?
Þarft þú meira járn? Fréttin29. október 2026Heilbrigðismál, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Er járnið í líkamanum of lágt þrátt ...
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík. Uppskriftin á...
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
Elín greindi frá tímamótunum með færslu á samfélagsmiðlinum Instagram, þar sem hún er með tæplega tólf þúsund fylgjendur.  „Mánaðarævintýri í Vestur-Á...
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
📅 29.10.2026 👁️ 3
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: M...
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
📅 29.10.2026 👁️ 3
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
Að minnsta kosti þrettán týndu lífi í dag þegar þrýstiloftsknúinn rússneskur árásardróni skall á lestarpalli þar sem fjölmenni stóð í borginni Dnípró ...
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
📅 29.10.2026 👁️ 3
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Í tilkynningu frá Haf...
Búið að ákæra son þingmanns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Búið að ákæra son þingmanns
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum til bana. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur.Vísir grei...
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
Samkvæmt könnun Maskínu finnst þremur fjórðu hlutum íslensku þjóðarinnar að Ísland ætti ekki að senda lag til keppninnar ef Ísrael verður á meðal þátt...
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri segir ekkert til í fullyrðingunum um að Hirti J. Guðmundssyni hafi verið sagt upp á Hagstofunni vegna pólitís...
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
Karlmaður sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí hefur verið ákærður í málinu. Frá þessu greinir Vísir en ...
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
📅 29.10.2026 👁️ 3
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
Fyrirtæki á Dalvík lagði fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna mannvirkja og framkvæmda á lóð, þar sem stendur einbýlishús, ...
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
Útlit er fyrir að þrátefli muni myndast aftur í ísraelskum stjórnmálum. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvor...
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
Witnesses say Samir Zitouni is a 'real-life hero' who told attacker "We love you, we can help you".
Kjarasamningar kennara í hættu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Kjarasamningar kennara í hættu
Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem ...
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum Fréttin29. október 2026Hatursorðæða, InnlentLeave a Comment Ummæli...
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
📅 29.10.2026 👁️ 3
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
One of the regions famous rock formations, known as "fairy chimneys", reportedly collapsed outside an open-air museum.
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
Hjörtur greinir frá uppsögninni í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook, Vísir hefur ekki náð af honum tali vegna málsins. Þar greinir hann frá því að f...
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 3
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
A 52-year-old woman needed medical treatment after being pulled to the ground by her hair and beaten during a violent robbery in Puerto de la Cruz, Te...
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
„Þá er minni keppni víst lokið áður en hún hófst almennilega, þar sem ég þurfti að segja mig frá keppninni vegna raddleysis þegar komið var að því að ...
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
📅 29.10.2026 👁️ 3
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
Images of child sexual abuse allegedly belonging to Meghan Markle's father had reportedly been found in his former home in the Philippines.
Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnaraðgerðir. Auk þriðju hrinu uppsagn...
Sonur þing­mannsins á­kærður - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sonur þing­mannsins á­kærður - Vísir
Þetta staðfestir Sigurður Ólafsson saksóknari.  Gæsluvarðhald mannsins rann út þann 22. október og var það framlengt. Sömuleiðis var gefin út ákæra í ...
Repúblikanar ósáttir við að Demókratar bjóði fram nafna síns manns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Repúblikanar ósáttir við að Demókratar bjóði fram nafna síns manns
Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings...
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
📅 29.10.2026 👁️ 3
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings...
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
📅 29.10.2026 👁️ 3
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra og telur að úrræðið hafi ekki brugðist ...
Elliði segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora í strætó af því hann gengur úr Mjóddinni
📅 29.10.2026 👁️ 3
Elliði segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora í strætó af því hann gengur úr Mjóddinni
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora að taka strætó heim af því að vagninn gengur úr Mjóddinni. Hann segir líka...
Allt logar vegna uppsagnar Hjartar: „Þessu verður að mótmæla kröftuglega“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Allt logar vegna uppsagnar Hjartar: „Þessu verður að mótmæla kröftuglega“
Allt logar í athugasemdum eftir að Hjörtur J. Guðmundsson greindi frá því að honum var sagt upp á Hagstofunni. Telja margir að uppsögnin sé af pólitís...
Halloween celebrations cancelled across the Canary Islands following Toledo train tragedy
📅 29.10.2026 👁️ 3
Halloween celebrations cancelled across the Canary Islands following Toledo train tragedy
Halloween celebrations and other weekend events are being cancelled or postponed in parts of the Canary Islands following the tragic train accident in...
„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“ - Vísir
Þekktastur er Stefán Máni fyrir myrkar glæpasögur og hefur fjórum sinnum hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, síðast í fyrra fyrir bókin...
23 sagt upp og þrír endurráðnir
📅 29.10.2026 👁️ 3
23 sagt upp og þrír endurráðnir
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að fækka um 18,6 stöðugildi hjá bænum á næsta ári. Með þessu ætlar bærinn að lækka rekstrarkostnað um 330 millj...
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 13, officials say
📅 29.10.2026 👁️ 3
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 13, officials say
Dnipro regional head Oleksandr Hanzha said at least 10 others were wounded in the attack, including an 11-year-old boy.
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 14, officials say
📅 29.10.2026 👁️ 2
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 14, officials say
At least 14 others were wounded in the attack in the central city of Dnipro, including an 11-year-old boy.
Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar segir að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir...