Rússlandsher gerði árásir víðs vegar um Úkraínu síðasta sólarhring og drap 16 manns og særði 86. Harðastar voru árásir á héraðið Kherson. Þar voru sex manns drepnir og 26 særðir, þar á meðal barn, hefur úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent eftir héraðsstjóranum.
Herinn gerði einnig árásir á borgina Kherson síðasta sólarhring. Borgin stendur við ána Dnípró. Hinum megin við ána hefur Rússlandsher verið síðan sumarið 2024 og sent fjöldann allan af árásardrónum að borginni. Drónastríðið hefur haft mikil áhrif á daglegt líf fólks í borginni sem fer síður út þegar skyggni er gott, því þá eru meiri líkur á að verða fyrir drónaárás.