Russel Brand í vandræðum í viðtali við Piers Morgan

Breski grínistinn Russell Brand vakti mikla athygli í gær eftir að óþægilegt viðtal við Piers Morgan var birt á YouTube, þar sem hann átti í vandræðum með að finna biblíuvers sem hann sagðist hafa lesið fyrir dómi.
Í þættinum Piers Morgan Uncensored spurði Morgan Brand hvaða biblíuvers hefðu haft sérstaka þýðingu fyrir hann þegar hann mætti með Biblíu í réttarsal. Brand þakkaði fyrir spurninguna og fór að fletta í bókinni góðu, en leið rúm mínúta í þögn á meðan hann reyndi að finna rétta staðinn.
Að lokum sagði hann að versið væri úr Jesaja en viðurkenndi að hann fyndi ekki nákvæmlega það sem hann hefði lesið þann dag. Í staðinn las hann upp annað vers: „Ég vil lofa þig, Drottinn. Þótt þú værir reiður mér, hefur reiði þín linast og þú hefur huggað mig.“
Atvikið fór fljótt í dreifingu á netinu þar sem margir lýstu því sem „vandræðalegu“ og „sársaukafullu“ að horfa á. Sumir gagnrýndu Brand harðlega á meðan aðrir bentu á að uppsetning myndbandsins hefði gert augnablikið enn vandræðalegra.
Brand stendur nú frammi fyrir réttarhöldum vegna ákæra um nauðgun og kynferðisbrot. Hann var upphaflega ákærður árið 2025 fyrir fimm brot gegn fjórum konum og síðar bættust við fleiri ákæruliðir. Hann hefur neitað sök í öllum málum.
Rannsóknin hófst árið 2023 þegar meint fórnarlömb stigu fram opinberlega og lýstu atvikum sem áttu að hafa átt sér stað á árunum 2006 til 2013.
Í fyrri yfirlýsingum hefur Brand viðurkennt að hafa átt í erfiðleikum í fortíðinni en neitað alfarið að hafa beitt ofbeldi. Réttarhöldin eru fyrirhuguð í október.
Hér má sjá hið vandræðalega myndskeið: