Prís býður upp á lægsta verðið af íslenskum matvælaverslunum og næstar koma Bónus og Krónan, samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands. Prís var oftast með lægsta verðið og þar var matarkarfan ódýrust þegar ASÍ kannaði verðið.
Verðlagseftirlitið fór í Bónus, Krónuna, Nettó, Hagkaup, Krambúðina, Kjörbúðina, Fjarðarkaup, Prís og SPAR. Kannað var verð á 289 vörum. Prís var oftast með lægsta verðið í öllum helstu vöruflokkum. Verðið var 5,5 prósentum hærra í Bónus, 6,0 prósentum hærra í Krónunni og 11 prósentum hærra í Nettó.
Verðlagseftirlitið tiltekur nokkrar vörur þar sem mikill verðmunur var milli verslana.
2.180 krónum munaði á kílóverðinu á Lúxus lambalæri frá Kjarnafæði. Ódýrast var það í Prís, þar sem kílóið kostaði 2.599 krónur, en dýrast í Nettó, sem rukkaði 4.779 krónur á kílóið. Lambalærið var því 84 prósentum dýrara í Nettó en Prís.
Mjólkurlítrinn var ódýrastur í Prís en 42 prósentum dýrari í Krambúðinni þar sem hann var dýrastur.
Spergilkál kostaði frá 479 krónum upp í 749 krónur kílóið, sem gerir 56 prósenta verðmun.
Verðlagseftirlitið kannaði verð í níu verslunum frá 8. til 14. júní. Aðeins var kannað verð en hvorki gæði né þjónusta.