Nefnd um eftirlit með lögreglu segir að uppi séu vísbendingar um mögulega ámælisverða háttsemi starfsmanna embættis lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu í máli er snýr að kæru á hendur lögreglumanni fyrir húsbrot. Ríkissaksóknari gerði alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð lögreglunnar en málið fyrndist í meðförum lögreglu, en ekkert var unnið í rannsókn þess eftir að tekin var skýrsla af lögreglumanninum. Í svörum lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu er meðal annars vísað til reglna ríkissaksóknara um forgangsröðun mála.
Ríkissaksóknari gerði alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð lögreglu á kæru gegn lögreglumanni - Fyrndist í kjölfar aðgerðaleysis