Íslenska ríkið hefur ákveðið á áfrýja dómi sem féll í héraðsdómi Reykjavíkur í plastbarkamálinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt vegna stórfellds gáleysis Tómasar Guðbjartssonar læknis, sem að mati héraðsdóms leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til tjóns og andláts Andemariams Beyene , tæpum þremur árum eftir að plastbarki var græddur í hann.
Dómur héraðsdóms verður ekki kallaður annað en áfellisdómur.
Í honum segir að Tómas hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi og brotið gegn þágildandi læknalögum.
Samkvæmt dómnum átti Tómas í mikilvægum samskiptum við ítalska lækninn Paolo Macchiarini, sem framkvæmdi aðgerðina, og fleiri um heilsufar Andemariams meðan hann var í meðferð á Landspítala sem hann færði ekki í sjúkraskrá eins og hann hefði átt að gera.
„Mikilvægust og afdrifaríkust þeirra samskipta varða það er Tómas Guðbjartsson breytti vísvitandi þann 12. maí 2011 tilvísun sjúklingsins til Svíþjóðar til þess að láta líta svo út sem „öll önnur læknismeðferð væri fullreynd“, að beiðni aðgerðarlæknisins,“ segir í dóminum.