Fræðsluspil um hinsegin málefni er nú aðgengilegt í verkfærakistu Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Um er að ræða spil með hinsegin fánum sem ætlað er að kynna börnum og starfsfólki skóla og frístundastarfs ólíka fána og hugtök tengd hinsegin málefnum.
Spilið er ætlað börnum á aldrinum 6 til 9 ára, 9 til 12 ára og 13 til 16 ára, auk þess sem það er ætlað starfsfólki í skóla- og frístundastarfi til starfsþróunar.
Hægt að prenta út sem minnisspil eða veiðimann
Samkvæmt lýsingu Reykjavíkurborgar er um að ræða prentanlegt spil sem hægt er að klippa út og plasta. Hægt er að prenta tvö eintök af hverju spjaldi til að búa til minnisspil eða fjögur eintök til að spila Veiðimann.
Markmið spilsins er að kynna leikendum fána sem tengjast ýmsum hinsegin málefnum og veita stuttar skýringar á merkingu þeirra. Með spilinu fylgir einnig leiðbeiningablað þar sem útskýrt er hvað hver fáni stendur fyrir.
Meðal þeirra fána sem fjallað er um eru meðal annars regnbogafáninn, transfáninn, tvíkynhneigðafáninn, pankynhneigðafáninn, intersex-fáninn, kynsegin fáninn, eikynhneigðafáninn, fjölástafáninn og flæðigervafáninn.
Hluti af menntastefnu Reykjavíkurborgar
Spilið er hluti af verkfærakistu Menntastefnu Reykjavíkurborgar og er tengt þremur af fimm grunnþáttum stefnunnar, félagsfærni, læsi og sjálfseflingu.
Í lýsingu borgarinnar kemur fram að meginmarkmið Menntastefnu Reykjavíkurborgar sé að „öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.“
Stefnan byggir á fimm grunnþáttum, en það eru félagsfærni, sjálfseflingu, læsi, sköpun og heilbrigði og á að leggja grunn að skóla- og frístundastarfi sem styður við lýðræðislega þátttöku, jafnrétti og virðingu fyrir fjölbreytileika.
Kostað af Reykjavíkurborg
Verkefnið er hluti af fræðsluefni sem Reykjavíkurborg býður starfsfólki skóla og frístundastarfs að nýta og er því fjármagnað af borginni sem hluti af Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Spilið er aðgengilegt í verkfærakistu Menntastefnu Reykjavíkurborgar þar sem kennarar og annað starfsfólk geta hlaðið því niður, prentað út og notað í starfi með börnum og ungmennum.
Nútíminn óskaði eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg
Nútíminn hefur sent fyrirspurn á Reykjavíkurborg þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvenær Hinsegin fána spilið var gefið út, hverjir komu að gerð þess og hver kostnaðurinn við þróun og útgáfu verkefnisins hafi verið.
Þegar þessi frétt er birt hafa svör ekki borist frá Reykjavíkurborg. Fréttin verður uppfærð berist svör frá borginni.