Dagskrá bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir, sem haldin verður í nóvember, er farin að taka á sig mynd. Nú hefur verið staðfest að breski rapparinn Tinie Tempah verður á meðal gesta og ætlar hann að fara yfir lífshlaup sitt og feril á hátíðinni.
Tinie Tempah er sá breski rappari sem átt hefur flest topplög þar í landi og mun koma hans hingað eflaust vekja mikla athygli.
„Já, þetta er svolítið út fyrir kassann hjá okkur og fyrir hann líka. Hann gaf út bók í Bretlandi fyrir nokkrum árum um ævi sína og mun tala um hana og líf sitt,“ segir Ragnar Jónasson rithöfundur sem skipuleggur hátíðina ásamt Yrsu Sigurðardóttur.
„Við hittumst á Spáni í vor. Þar var hann með lítinn viðburð í lokuðum hópi og sagði frá sínum ferli og sinni lífsspeki. Saga hans er áhugaverð, enda braust hann til metorða og efna á eigin forsendum. Hann hyggst segja okkur frá sínum ferli og vonandi hitta aðdáendur sína hér heima,“ segir Ragnar en Tempah kemur hingað til lands eftir að hafa troðið upp í Hyde Park og á Wembley í ár.
Ragnar segir aðspurður að ekki megi búast við því að hann blási til tónleika hér. „Nei, því miður er það ekki hluti af pakkanum. En maður veit svo sem ekki hvað hann gerir í sínum frítíma á Íslandi.“
Hann segir að þau Yrsa séu mjög spennt fyrir komu rapparans. Fram til þessa hafi þau fengið til sín leikara, rithöfunda og stjórnmálamenn en Tinie Tempah færi þeim eitthvað nýtt. Koma hans geti ef til vill dregið að gesti sem ekki hafi sótt hátíðina áður. „Það hefur verið mikil umræða um að unga fólkið sé hætt að lesa og með þessu reynum við að ná til þess. Við erum að leggja okkar af mörkum til að fá yngra fólk til að kaupa miða á hátíðina.“
Fleiri góðir gestir hafa boðað komu sína á hátíðina í nóvember en miðasala á hana er hafin á tix.is. Þar á meðal er leikarinn Tobias Santelmann, sem lék í Exit-þáttunum, og sjálfan Harry Hole í nýjum Netflix-þáttum sem gerðir eru eftir bókum Jo Nesbø. „Hann er frábær leikari og það verður gaman fyrir Íslendinga að hlusta á hann tala um þessa þætti,“ segir Ragnar.
Arnaldur Indriðason verður einn af heiðursgestum Iceland Noir en rúmur áratugur er síðan hann tók síðast þátt í hátíðinni. Þá kemur Sofi Oksanen fram ásamt Auði Övu Ólafsdóttur. Sérstakur Agöthu Christie-dagur verður í tilefni þess að 50 ár eru síðan hún lést og 100 ár síðan frægasta bók hennar kom út. Ragnar segir að barnabarnabarn hennar komi hingað ásamt fríðu föruneyti. Þar á meðal eru Lucy Foley sem skrifaði nýju Miss Marple-bókina og Chris Chibnall sem skrifaði Netflix-þættina Seven Dials og Broadchurch.
„Þetta verður mikið fjör. Svo lendir hátíðin á föstudeginum 13. nóvember og þá ætlum við að vera með smá hryllingsþema sem Yrsa sér um að skipuleggja.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.